S K O T G A N G A

SKOTGANGA býður uppá skipulagðar gönguferðir fyrir hresst fólk á öllum aldri.

 

Í þessum ferðum hefur ávallt myndast góð stemming, enda alltaf glatt á hjalla í góðum gönguhópi.

 

Í boði eru 6 tegundir gönguferða:

Gengið er að meðaltali í 20 km. á dag (5 - 8 klst.).  Gisting er af ýmsum toga (Hótel, Gistihús, B&B), gist á nýjum stað á hverjum degi (nema á Windmere Way þar sem gist er á sama hótelinu í 6 nætur).  Farangur er keyrður á milli gististaða, þ. a. aðeins þarf að ganga með léttan bakpoka með því sem þarf að nota yfir daginn.