S K O T G A N G A

West Highland Way

 

West Higland Way er 153 km gönguleið milli Milngavie (úthverfis Glasgow) og Fort William. Þetta er vinsælasta gönguleið í Skotlandi, hana ganga 70.000 manns árlega. Leiðin liggur í gegnum eitthvert fallegasta svæði landsins, meðfram vötnum og tignarlegum fjöllum, um skóga, dali og heiðar.  Gangan er í meðallagi erfið, ekkert príl og því við hæfi flestra.

 

  

Hadrian's Wall

 

Árið 122 AD fyrirskipaði Rómverski keisarinn Hadrian að reisa skyldi vegg stranda á milli í norður Englandi til að halda í skefjum Barbörunum í norðri.  Veggurinn (Hadrian's Wall) liggur frá Wallsend í austri (úthverfi Newcastle) til Bowness on-Solway í vestri. Rústir Hadrian's Wall eru stærstu fornminjar í Norður Evrópu.  Búið er að opna 134 km gönguleið meðfram veggnum. Leiðin liggur um einhverjar fallegustu sveitir Englands. Á leiðinni eru 16 virkisrústir og 8 söfn, þannig að einstakt tækifæri gefst á að kynna sér sögu Rómverja á svæðinu.

 

 

Great Glen Way

 

Great Glen Way er 123 km löng gönguleið frá Fort William til Inverness. Gengið framhjá hæsta fjalli Bretlandseyja (Ben Nevis), fylgt stærsta jarðfræðilega misgengi Bretlands og meðfram frægasta vatni Bretlands (Loch Ness). Gangan endar í Inverness, sem er nyrsta borg Skotlands  og höfuðborg Hálandanna. Mikið af göngunni er meðfram siglingarleiðinni Calendonian Canal, en smíði hennar þykir eitt mesta verkfræðilega afrek Viktoríutímans í Skotlandi. Gönguleiðin er yfirleitt auðveld yfirferðar, eftir göngu- og skógarstígum en það eru þó kaflar á leiðinni sem eru erfiðari og síðasta daginn er gengið 31 km.

 

 

Speyside Way

 

Speyside Way er 104 km gönguleið milli Buckie á norðurströnd Skotlands og Aviemore í Cairngorms þjóðgarðinum í hjarta Hálandanna. Leiðin liggur um Spey dalinn  og fylgir að mestu ánni Spey, sem er önnur lengst á í Skotlandi, fræg fyrir laxveiði og vískí.

Speyside er frægasta viskíhérað heimsins - á þessari leið eru fjölmargar viskíverksmiðjur og gefst kostur á að heimsækja einhverjar þeirra til að kynna sér framleiðsluferlið og e.t.v. smakka örlítið í leiðinni.

Gönguleiðin er að mestu á flatlendi á góðum göngustígum og hentar því öllum aldurshópum.

 

 

Windemere Way

 

Windemere Way er stórfengleg 73 km gönguleið í kringum Lake Windemere, stærsta stöðuvatn Englands staðsett í hjarta Vatnahéraðsins (Lake District).

Vatnahéraðið er fjöllótt svæði í norðvestur Englandi og nýtur gríðarlegra vinsælda meðal ferðamanna og útivistafólks, enda af mörgum talið fegursta svæði landsins. Þar er að finna hæstu fjöll og stærstu og dýpstu vötn Englands.