S K O T G A N G A

Hadrian's Wall - 135 km gengnir á 6 dögum

 

Árið 122 AD fyrirskipaði Rómverski keisarinn Hadrian að reisa skyldi vegg stranda á milli í norður Englandi til að halda í skefjum Barbörunum í norðri.  Veggurinn (Hadrian's Wall) liggur frá Wallsend í austri (úthverfi Newcastle) til Bowness on-Solway í vestri. Rústir Hadrian's Wall eru stærstu fornminjar í Norður Evrópu.  Búið er að opna 135 km gönguleið meðfram veggnum. Leiðin liggur um einhverjar fallegustu sveitir Englands. Á leiðinni eru 16 virkisrústir og 8 söfn, þannig að einstakt tækifæri gefst á að kynna sér sögu Rómverja á svæðinu.

 

 

 

Dagur 1:

Lent á Manchester flugvelli, síðan er lest tekin til Carlisle. Eftirmiðdagurinn frjáls, þar sem hægt er t.d. að skoða Carlisle kastalann og rölta um í fallegum miðbænum. Gist er í miðborg Carlisle.

 

 

Dagur 2:

Keyrt til Bowness-on-Solway á vesturströndinni, þar sem gangan hefst. Gengið frá Bowness til Carlisle (24 km). Þægileg ganga á flatlendi. Gist er í miðborg Carlisle.

 

 

Dagur 3:

Gengið frá Carlisle til Walton (19 km). Þægilegur dagur í göngu á flatlendi. Veggurinn er lítið sýnilegur á þessari dagleið. Frá Walton er stutt keyrsla til Brampton sem er 400 manna huggulegur smábær. Þar er gist um nóttina.

 

Dagur 4:

Keyrt til Birdsowald Fort. Þaðan er gengið til Twice Brewed (15 km) sem er okkar næsti gististaður. Veggurinn er sýnilegur á löngum köflum, skemmtileg dagleið um hóla og hæðir þar sem margt athyglisvert er að sjá og skoða. Vindolanda Fort er stórmerkilegt safn og virkisrústir rétt við gististaðinn.  

 

Dagur 5:

Gengið frá Twice Brewed  til Wall (20.5 km).  Fyrri hluti dagleiðarinnar er um hóla og hæðir meðfram veggnum en seinni hlutinn meðfram vegum á engjum og túnum. Stoppað verður við Housesteads Fort og virkisrústirnar þar skoðaðar. Gist í smábænum Wall.

 

 

 

Dagur 6:

Gengið frá Wall til Heddon-on-the-Wall (22.5 km). Gengið á flatlendi um fagrar sveitir Englands. Ekkert sést af veggnum á þessari dagleið. Gist í nágrenni Heddon-on-the-Wall.

 

 

 

Dagur 7:

Gengið frá Heddon-on-the-Wall til Newcastle (17 km). Síðasti dagurinn er þægilegur í göngu - gengið niður hlíðarnar frá Heddon að Tyne ánni og gengið meðfram henni sem leið liggur til Newcastle. Gönguferðin endar í miðborginni og fagnað verður leiðarlokum við Millenium brúnna. Gist í miðborg Newcastle.

 

 

 

Dagur 8:

Um morguninn er farið til Manchester flugvallar og þaðan flogið til Íslands.

 

Umsögn:

 

"Við gengum Hadrians' Wall leiðina í júní 2009. Í okkar huga var gangan einstök upplifun frá upphafi til enda:

  • Mjög merkar fornminjar tengdar rómverska keisaradæminu - sagan varð ljóslifandi fyrir augum okkar bæði mannvirkjalega- hernaðarlega- og menningarlega séð. Við höfðum um nóg að hugsa alla leiðina, sem hefur vakið áhuga okkar eftir heimkomuna að kynna okkur þessa sögu betur.
  • Gönguleiðin liggur um einar fallegustu sveitir Englands. Á hverjum degi var útsýnið því eins og á fallegum gömlum póstkortum, engi og tún, tré og runnar, fallegir bóndabæir og jafnvel íburðamiklir herragarðar - engin fjöll en grónar smáhæðir hvert sem litið var. Upplifuninni mátti líkja við að komast í einhvern ævintýraheim þar sem allt er fallegt, rólegt og gott. Það spillti ekki fyrir að oft á tíðum lá leiðin í gengum túnin á bóndabæjunum innan um búfénað viðkomandi bænda - stundum gengum við um bæjarhlað og stundum yfir einstaka fjóshaug - allt saman ævintýri líkast.
  • Gangan var alls ekki erfið og við urðum aldrei þreytt en alltaf þægilega lúin í lok hvers dags. Á göngunni fannst okkur það skipta miklu máli að vera alltaf á góðum "alvöru" gönguskóm og nota göngustafi. Kvöldin í góðra vina hópi voru líka eftirminnileg.
  • Snorri var bæði fararstjóri og leiðsögumaður fyrstu 3 dagana og Inga bættist í hópnn síðustu 2 dagana. Það sem einkennir Snorra, að okkar mati, sem fararstjóra er rík þjónustulund, rólyndi, yfirvegun, traust og síðast en ekki síst góður húmor. Allur aðbúnaður og viðurgjörningur stóðs væntingar okkar og meira en það. Ef eitthvað kom upp á var leyst úr því - þegar fram kom ósk um að breyta aðeins ferðatilhögun síðasta daginn, þá var það ekkert mál. Sem leiðsögumann einkenndi Snorra, að okkar mati, góð þekking, hógværð s.s. hann hafði enga þörf fyrir að "láta ljós sitt skína skærast" hann vissi til að mynda ekki ALLT og hvíldi sáttur og afslappaður í því. Þetta leiddi m.a. til þess að það var líka rúm fyrir þekkingu okkar hinna og þannig varð til grundvöllur góðrar umræðu og skoðanaskipta frá upphafi - nokkuð sem við nýttum okkur óspart.

Það sem skiptir ekki minnstu máli er að bæði Inga og Snorri eru góðir ferðafélagar sem greinilega rækja starf sitt af mikilli alúð, metnaði, ríkri þjónustulund á aðlaðandi og persónulegan máta."

  

Haukur & Vilborg, Reykjavík