S K O T G A N G A

Speyside Way (104 km) gengnir á 5 dögum

 

Speyside Way er 104 km gönguleið milli Buckie á norðurströnd Skotlands og Aviemore í Cairngorms þjóðgarðinum í hjarta Hálandanna. Leiðin liggur um Spey dalinn  og fylgir að mestu ánni Spey, sem er önnur lengst á í Skotlandi, fræg fyrir laxveiði og vískí.

Speyside er frægasta viskíhérað heimsins - á þessari leið eru fjölmargar viskíverksmiðjur og gefst kostur á að heimsækja einhverjar þeirra til að kynna sér framleiðsluferlið og e.t.v. smakka örlítið í leiðinni.

Gönguleiðin er að mestu á flatlendi á góðum göngustígum og hentar því öllum aldurshópum.

   

Dagur 1:  Glasgow - Inverness

Lent á Glasgow flugvelli kl. 13:30, þaðan er ferðast sem leið liggur til Inverness, höfuðborgar hálandanna þar sem gist verður fyrstu nóttina.

    

Dagur 2:  Buckie - Fochabers

Ekið til Buckie, sem er lítill sjávarbær við Moray fjörðinn á norðurstönd Skotlands. Þar hefst gangan. Fyrsti hluti dagleiðarinnar er í vestur meðfram sjávarsíðunni, þangað til við komum að árósum Spey. Þaðan er gengið meðfram ánni í suðurátt áleiðist til smábæjarins Fochabers, en þar munum við gista um nóttina.

Ganga: 16 km

 

 

Dagur 3:  Fochabers - Aberlour

Frá Fochabers er gengið til suðurs - gott útsýni á leiðinni yfir Spey dalinn. Endum dagleiðina í Aberlour, sem er frægur viskíbær í hjarta malt viskí hérðaðsins.

Þar verður gist næstu 2 nætur.

Ganga: 24 km

 

  

Dagur 4:  Aberlour - Ballindalloch

Í dag er gengið í friðsælum skógi og hlíðum innan um bóndabæi og viskíverksmiðjur til Ballindalloch. Þar verður komið við í Cragganmore viskíverksmiðjunni, áður en ekið verður til baka til Aberlour.

Ganga: 17 km

 

 

Dagur 5:  Ballindalloch - Grantown-on-Spey

Ekið til Ballindalloch þar sem göngunni er haldið áfram. Hér er gengið um fagurgrænar sveitir og skóga á fjölbreyttum göngustígum um hóla og hæðir til Grantown-on-Spey sem er stærsti bærinn á þessari leið. í bænum er að finna úrval af verslunum, veitingahúsum og börum.

Ganga: 21 km

Dagur 6:  Grantown-on-Spey - Aviemore

Síðast göngudagurinn runninn upp. Áfram er þrammað suður Speydalinn og lokaáfanginn er útivistabærinn Aviemore. Þar iðar allt af mannlífi allan ársins hring, enda mikið af göngu- og hjólreiðafólki þar á sumrin og skíðagörpum á veturna. Um kvöldið verður göngulokum fagnað á einhverjum af fjölmörgum börum bæjarins.

Ganga: 27 km

 

  

Dagur 7:  Glasgow.

Um morguninn verður ferðast til Glasgow.  Frjáls tími og kvöld í Glasgow.

  

 

 

  

Dagur 8:  Heimferð

Frjáls morgunn í Glasgow. Ekið til Glasgow flugvallar kl. 11:45.  Flug til Íslands kl. 14:20.