S K O T G A N G A

Hér má finna umsagnir frá þátttakendum úr fyrri gönguferðum á West Highland Way:

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

"Að fara í West Highland Way göngu með Ingu og Snorra var frábært og við undirrituð mælum hiklaust með því. Við vorum líka mjög heppin með göngufélaga sem voru öll hress og skemmtileg og frábært að fá að kynnast þeim. Við vorum tuttugu sem gengum saman, fimmtán konur og fimm karlmenn og á öllum aldri. Við hjónin höfum nú þegar ákveðið að fara næsta sumar og ganga seinnihluta leiðarinnar. Náttúrufegurðin í Skosku hálöndunum er stórkostleg og skipulag og dagskrá ferðarinnar eins og best verður á kosið. Veðrið var eins og best verður á kosið alla dagana. Gangan var alls ekki erfið, það má segja að eftir hvern göngudag höfum við verið þægilega þreytt og þá var gott að koma í þessa fallegu litlu bæi þar sem gist var. Njóta þess að borða góðan mat sem allstaðar var til staðar og ekki má gleyma svalandi drykk sem alltaf var jafn langþráður eftir göngur dagsins. Það sem uppúr stendur er þó sennilega hversu hress, gestrisin, umburðalynd og einstaklega skemmtileg þau Inga og Snorri eru. Að kynnast þeim er mannbætandi og bara eintóm gleði. Bestu þakkir til ykkar elsku Inga og Snorri og við sjáumst sko örugglega aftur næsta sumar. "

 Gunnar og Anna Pála, Vopnafirði

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Við hjónin fórum í West Highland Way göngu með Ingu og Snorra í sumar.

Það var þolimmæði og alúð sem einkenndi þennan hóp tuttugu göngumanna á fjögurra daga göngu í Skosku hálöndunum.

Ákveðinn gönguhraði, ekki erfið ferð en góð vegalengd á hverjum degi.

Það voru þreyttir en ánægðir ferðalangar sem skiluðu sér í gistingu á hverju kvöldi, og fararstjórinn hugsaði vel um hópinn sinn.

Allt gekk upp, góð fararstjórn, gott veður og falleg gönguleið, og ekki má gleyma samferðafólkinu.

Við mælum með þessum gönguferðum til Skotlands - þetta veitti okkur hjónum mikla ánægju og erum við ákveðin í að fara sem fyrst og klára seinni leiðina og áframhaldið sem er Great Glen Way.

 

Það má með sanni segja að í ferðahópnum hjá Ingu og Snorra er enginn ókunnugur, aðeins vinir sem eiga eftir að hittast.“

Pétur og Guðrún, Selfossi

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

"Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja..... best að byrja bara á því að segja TAKK! Þessi ferð var stórkostleg frá upphafi til enda. Allt frá hlýju faðmlagi á flugvellinum við komu og þar til við kvöddumst á sunnudagskvöldinu. Það klikkaði ekkert! Skipulagið, gisting, matur, fararstjórnin, gleðin, landslagið, veðrið...... allt var þetta frábært og fullkomnaði langþráðan draum að ganga í Hálöndunum. Vonandi gefst mér færi á því að ganga með þér síðar og ekki væri verra aðná hópnum saman aftur. Get sagt með vissu að þetta er skemmtilegasti hópur sem ég hef gengið með!"

Delía Kristín Howser, Hafnarfirði 

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

 „Vorum 11 skvísur sem skelltum okkur saman í sjö daga göngu(lúxus)ferð frá Milngavie til Fort William í júlí 2008. Ferðin var frábær á alla staði. Skemmst er frá því að segja að skipulagið hjá Ingu er 100% og hún meðhöndlaði okkur eins og ungabörn, sótti okkur á flugvöllinn og skilaði okkur þangað í lok ferðar. Langt síðan ég hef farið í ferðalag þar sem eins vel er hugsað fyrir öllum mínum þörfum. Þurfti nánast bara að sjá um varaglossið sjálf. Ekki skemmdi að Inga er þrælskemmtilegur ferðafélagi. Hlógum og flissuðum í sjö daga samfleytt. Gjeggjað að komast í sturtu og hrein rúm í lok hvers dags. Gönguleiðin er stórkostleg. Vorum alltaf að grípa andann á lofti yfir skoskri náttúrufegurð. Fjölbreytnin í landslagi mikil, skógar og auðn á víxl. Væri til í að fara aftur……strax í dag!“

Ragnheiður Matthíasdóttir, Sauðárkróki

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

"Göngugarparnir fréttu af Ingu í Glasgow sem skipulegði gönguferðir um Skosku hálöndin. Það var haft samband við hana og úr varð ferð sem farin var í lok maí 2006 sem hún sá um. Það eina sem við þurftum að gera var að bóka flug, hún sá um rest. Gangan tók 1 viku, gengið ca. 20 km á dag, mislanga daga. Ferðin var algjört ævintýri, frábær skemmtun, vel skipulögð og reyndi passlega á. Inga féll vel inn í hópinn og var með okkur allan tímann, ef eitthvað kom upp á leysti hún það án þess að maður yrði var við það. Göngugarpar eru að fara í aðra göngu með Ingu sem hún sér um og hlakka ég mikið til."

Þórey Sigurðardóttir, Reykjavík

------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- 

"Virkilega þægileg og skemmtileg gönguleið en þarf að sjálfsögðu visst úthald. Fyrst grænar sveitir þar sem við týndum brómberin við göngustígana og átum með bestu lyst. Svo leiðin framhjá Loch Lomond vatni með skemmtilegu og fjölbreytilegu skóglendi, sumt eins og beint úr Hringadróttinssögu. Síðan heiðar og fjalllendi sem ég var hrifnust af. Mér fannst alger himnasæla að ganga í hlýju veðri hvort sem var rigning eða heiður himinn, innan um notalegt fjalllendi Skotlands. Það kom þægilega á óvart að Skotarnir eru eins og þeim hefur verið lýst bæði skemmtilegir og gestrisnir."

Kristín Sverrisdóttir, Reykjavík

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

,,Ferðin með Ingu uppfyllti það sem ég sækist eftir í fríi. Hún reyndi á líkamlega, en þó hæfilega mikið. Umhverfið var allt í senn ævintýrlegt, fallegt og fjölbreytt og viðkomustaðirnir ólíkir og hver með sinn sjarma. Úr þessu varð hin besta ferð sem skilaði þreyttum en ánægðum ferðalöngum á leiðarenda. Svo má ekki gleyma því að Inga, með sína léttu lund og endalausu þolinmæði, átti stóran þátt í því að gera góða ferð enn betri.”
Anna Lóa Ólafsdóttir, Keflavík

------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- 

"Frábær ferð í alla staði. Einstök náttúrufegurð og ekki skemmir glettni og gestrisni Skotanna fyrir. Hefði ekki viljað missa af þessari ferð fyrir nokkurn hlut og á örugglega eftir að fara aftur. Svo má nú ekki gleyma að hrósa fararstjóranum, hreint frábær svo ekki sé meira sagt."

Bjarnveig Jónasdóttir, Neskaupsstað

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

“Hvað stóð uppúr” hafa margir spurt eftir heimkomuna.

 

Satt best að segja veit ég það ekki. Allt stóð uppúr því allt var svo nýtt, skemmtilegt og fallegt. Móttökur, viðmót og viðkynning var engu lík, hvort heldur var innan gönguhópsins eða við fjölskyldu Ingu hálandahöfðinga, Möggu heimasætu og Snorra sem alltaf stóð bakvaktina.

Mér finnst ég standa ríkari eftir og þakka fyrir mig. Inga sótti okkur á flugvöll, bauð hópnum til hádegisverðar og gaf okkur greinagóða lýsingu á því hvernig best væri að eyða deginum fram að sannkallaðri grillveislu Snorra. Að borðhaldi loknu fengum við sýnikennslu í frumstæðri plásturskógerð sem mælt var með að við nýttum okkur til að fyrirbyggja óþægindi á hæl, tám og iljum. Þetta átti eftir að koma sér vel sem og allar plásturbirgðirnar sem Inga og Magga útdeildu.

 

Að morgni næsta dags var lagt af stað í fjögurra daga göngu inn á hálendið. Gangan sóttist vel um fagurgrænar hæðir og hóla í ólýsanlegri náttúrufegurð, þar sem skiptust á og fléttuðust saman engi, móar, runnar, trjágróður og burknar stundum meira en mannhæðaháir. Í fjarska blöstu við tignarleg fjöll og vötn. Einstaka bóndabæir kúrðu innan grængróðursins sem og nokkur smáþorp. Til að létta gönguna skiptumst við á gátum, bröndurum og sögum sem samið var um að mætti færa í stílinn, allt upp í 70%.

Þetta nýttum við okkur og urðu sögurnar meira krassandi eftir því sem hópurinn kynntist betur. Að sjálfsögðu sagði þreyta til sín þegar á göngu leið, annað hvot væri það, enda margar okkar nánast óvanar lengri göngu en út í bíl á leið til vinnu, en hvað um það, þá var bara að harka af sér. Við sungum óspart hvatningarsöngva sem bárust langar leiðir í hálendiskyrrðinni. ”Atti katti nóva” er mjög gott göngulag, sennilega það besta, en við sungum líka ”Göngum, göngum” og ”It´s a long way” sem aðrir ferðalangar kunnu og tóku undir með okkur svo dundi í fjöllunum. Inga sá til þess að hópurinn færi ekki of hratt yfir.

 

Á jöfnum og eðlilegum gönguhraða héldum við áfram, áðum af og til, virtum fyrir okkur útsýnið, bruddum þrúgusykur, Opal eða súkkulaðistöng og fengum okkur vatnssopa áður en lagt var í hann á ný. Um hádegisbil stoppuðum við oftast við hlýlegar sveitakrár, keyptum okkur dykk við hæfi og borðuðum nestisbitann okkar. Í lok göngudags biðu okkar ”í flestum tilfellum” notarleg herbergi, góð rúm og dásamleg sturta. Hvílík dásemd það var ásamt því að fá sér grátandi kaldan bjór og góðan kvöldverð.

 

Ég segi ”í flestum tilfellum”, því uppi á hálendi, inni í óbyggðum er ekki allstaðar lúxus að hafa. Því kynntumst við eina kvöldstund sem er bara gaman svona eftirá. Skemmtileg og skondin uppákoma fyrir ömmu að segja fjölskyldunni heima frá því þegar virðulegar frúr frá Íslandi gistu í svefnskála farfuglaheimilis, fjarri byggð, í brakandi járnkojum, sennilega afgangsgóssi frá stríðsárunum. Á kojubríkinni bættum við plástursskóna og smurðum stirða vöðva með bólgueyðandi og sterklyktandi kamfórukremi þar til sveið í augu og nef. Hrotukór og gormabrak hélt vöku fyrir sumum en aðrar sváfu.

 

Minni á að sögurnar okkar leyfa 70% frávik, þannig eru þær betri, en kannski ekki alveg sannar. Tyndrum var lokaáfanginn og í dagslok féllumst við í faðma. Stoltar, kátar göngukonur þökkuðu fyrir ógleymanlegar samverustundir sem hvergi bar skugga á, skiptust á hrósyrðum fyrir hreint ótrúlegan dugnað og þor. ”Sjáið tindinn, þarna fór ég” sagði skáldið og við líka. Já við vissum af okkur við ferðalok, vorum montnar eins og vera ber þegar marki er náð. Allar vorum við á því að þetta ævintýri vildum við upplifa aftur og það sem fyrst. Hjartans þakkir Inga, Magga, Snorri og mínar ágætu samferðarkonur. Það voru forrréttindi að kynnast ykkur og vera með ykkur þessa viku í lok júlímánaðar 2007.

Arnbjörg Edda Guðbjörnsdóttir, Reykjavík

------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- 

"Við vinkonurnar ákváðum að skella okkur á fyrri part gönguleiðarinnar West Highland Way sl. sumar. Tekið var vel á móti okkur og á Inga fararstjóri hrós skilið fyrir góðan undirbúning og vel skipulagða ferð.

 

Ferðin sjálf var hreint ævintýri, hver dagur með sinn sjarma bæði í göngu og einstakri náttúrufegurð. Stemningin í ferðinni var frábær enda föngulegur kvennahópur þar á ferð ásamt frábærum fararstjóra með einstaklega skemmtilega nærveru. Stoltið var á sínum stað þegar á áfangastað var komið og líðanin ólýsanleg og hlökkum við vinkonurnar mikið til að koma aftur og takast á við seinni part ferðarinnar."

Rakel og Fjóla, Keflavík