S K O T G A N G A

West Highland Way Fyrri hluti (83 km) gengnir á 4 dögum

 

West Higland Way er 153 km gönguleið milli Milngavie (úthverfis Glasgow) og Fort William. Þetta er vinsælasta gönguleið í Skotlandi, hana ganga 70.000 manns árlega. Leiðin liggur í gegnum eitthvert fallegasta svæði landsins, meðfram vötnum og tignarlegum fjöllum, um skóga, dali og heiðar.  Gangan er í meðallagi erfið, ekkert príl og því við hæfi flestra.

 

 

Dagur 1:  Glasgow

Lent á Glasgow flugvelli kl. 13:30, ekið á fyrsta gististað. Frjáls eftirmiðdagur í Glasgow.

Um kvöldið er móttaka (kvöldmatur) hjá fararstjóra, þar sem tækifæri gefst á að hrista gönguhópinn saman og  farið verður yfir dagskrá næstu daga. 

 

Dagur 2:  Milngavie - Drymen

Gönguleiðin liggur frá Milngavie, úthverfi Glasgow í gegnum skóglendi og út í fagurgræna sveitina. Þægilegur dagur í göngu og ágætis upphitun fyrir næstu daga.

Ganga: 19 km - Hækkun: 90 m

 

 

Dagur 3: Drymen - Rowardennan

Þennan dag er gengið í skóglendi og þaðan upp Conic Hills (360 m). Héðan er stórkostlegt útsýni yfir Loch Lomond vatnið og eyjarnar. Gengið gegnum Balmaha og meðfram Loch Lomond áleiðis til Rowardennan.

Ganga: 22,5 km - Hækkun: 360 m

  

 

Dagur 4: Rowardennan - Inverarnan

Þessi dagur er mjög fjölbreyttur í göngu og að hluta seingenginn. Mestur hluti af deginum er meðfram Loch Lomond vatninu og er þessi leið afskaplega falleg og skemmtileg.

Ganga: 22,5 km - Hækkun: 240 m

 

 

Dagur 5: Inverarnan - Tyndrum

Gengið upp Glen Falloch dalinn, fram hjá Falloch  fossum og upp hjá Crianlarich áleiðis til Tyndrum. Fallegt útsýni yfir sveitina. 

Ganga: 21 km - Hækkun: 300 m

 

 

Dagur 6: Tyndrum - Glasgow

Keyrt til Glasgow um morguninn, ferðin tekur 1 1/2 tíma. Farið verður með farangur og fólk á gististaðinn og síðan er frjáls dagur + kvöld.

 

Dagur 7: Glasgow

Frjáls dagur. Kjörið að heimsækja Edinborg (50 mín. með lest) eða spóka sig um í Glasgow.

 

Dagur 8: Heimferð

Ekið til Glasgow flugvallar kl. 12:00. Flogið heim til Íslands kl. 14:20.