West Highland Way Öll leiðin - 153 km gengnir á 7 dögum
West Highland Way er 153 km gönguleið milli Milngavie (úthverfis Glasgow) og Fort William. Þetta er vinsælasta gönguleið í Skotlandi, hana ganga 70.000 manns árlega. Leiðin liggur í gegnum eitthvert fallegasta svæði landsins, meðfram vötnum og tignarlegum fjöllum, um skóga, dali og heiðar. Gangan er í meðallagi erfið, ekkert príl og því við hæfi flestra.

Dagur 1: Glasgow
Lent á Glasgow flugvelli kl. 13:30, ekið á fyrsta gististað. Frjáls eftirmiðdagur í Glasgow.
Um kvöldið er móttaka (kvöldmatur) hjá fararstjóra, þar sem tækifæri gefst á að hrista gönguhópinn saman og farið verður yfir dagskrá næstu daga.
Dagur 2: Milngavie - Drymen
Gönguleiðin liggur frá Milngavie, úthverfi Glasgow í gegnum skóglendi og út í fagurgræna sveitina. Þægilegur dagur í göngu og ágætis upphitun fyrir næstu daga.
Ganga: 19 km - Hækkun: 90 m

Dagur 3: Drymen - Rowardennan
Þennan dag er gengið í skóglendi og þaðan upp Conic Hills (360 m). Héðan er stórkostlegt útsýni yfir Loch Lomond vatnið og eyjarnar. Gengið gegnum Balmaha og meðfram Loch Lomond áleiðis til Rowardennan.
Ganga: 22,5 km - Hækkun: 360 m

Dagur 4: Rowardennan - Inverarnan
Þessi dagur er mjög fjölbreyttur í göngu og að hluta sein genginn. Mestur hluti af deginum er meðfram Loch Lomond vatninu og er þessi leið afskaplega falleg og skemmtileg.
Ganga: 22,5 km - Hækkun: 240 m
Dagur 5: Inverarnan - Tyndrum
Gengið upp Glen Falloch dalinn, framhjá Falloch fossum og upp hjá Crianlarich áleiðis til Tyndrum. Fallegt útsýni yfir sveitina.
Ganga: 21 km - Hækkun: 300 m

Dagur 6: Tyndrum - Kingshouse
Lengsti dagurinn framundan. Nánast öll leiðin er gengin á gömlum hermannavegum til Bridge of Orchy og upp á heiðina miklu Rannoc Moor, síðan niður til Kingshouse.
Ganga: 30 km - Hækkun:330 m

Dagur 7: Kingshouse - Kinlochleven
Hér er gengið upp hinn fræga Devil's Staircase ( Djöflastigann), hér er hæsti punktur á leiðinni eða 530 m. Þetta er ekki eins erfitt eins og nafnið segir til um heldur hinn besti stígur upp og á toppnum er fögur fjallasýn hvert sem litið er. Þaðan liggur leiðin til Kinlochleven sem er næst stærsti bærinn á leiðinni.
Ganga: 14,5 km - Hækkun: 540 m
Dagur 8: Kinlochleven - Fort William
Lokadagurinn runninn upp. Stemning í hópnum þegar hann gengur upp hlíðar Kinlocleven og áleiðis til Fort William. Munum ganga dali,skóga og við rætur Ben Nevis, hæsta fjalls Bretlandseyja (1.344 m).
Ganga: 22,5 km - Hækkun: 300 m
Dagur 9: Fort William - Glasgow
Keyrt til Glasgow, ferðin tekur 3 tíma. Farið verður með farangur og fólk á gististaðinn og síðan er frjáls dagur + kvöld. Kjörið að heimsækja Edinborg (50 mín. með lest) eða spóka sig um í Glasgow.
Dagur 10: Heimferð
Ekið til Glasgow flugvallar kl. 12:00. Flogið heim til Íslands kl. 14:20.