S K O T G A N G A

West Highland Way Seinni hluti - 70 km gengnir á 4 dögum

 

West Highland Way er 153 km gönguleið milli Milngavie (úthverfis Glasgow) og Fort William. Þetta er vinsælasta gönguleið í Skotlandi, hana ganga 50.000 manns árlega. Leiðin liggur í gegnum eitthvert fallegasta svæði landsins, meðfram vötnum og tignarlegum fjöllum, um skóga, dali og heiðar.  Gangan er í meðallagi erfið, ekkert príl og því við hæfi flestra.

 

 

Dagur 1: Glasgow

Lent á Glasgow flugvelli kl. 13:30, ekið á fyrsta gististað. Frjáls eftirmiðdagur í Glasgow.

Um kvöldið er móttaka (kvöldmatur) hjá fararstjóra, þar sem tækifæri gefst á að hrista gönguhópinn saman og  farið verður yfir dagskrá næstu daga.

 

Dagur 2: Tyndrum - Inveroran

Ekið til Tyndrum þar sem gangan hefst.  Nánast öll leiðin er gengin á gömlum hermannavegum til Bridge of Orchy og þaðan til Inveroran. Þægileg dagleið.

Ganga:  16 km - Hækkun: 200 m

 

 

Dagur 3: Inveroran - Kingshouse

Gengið yfir heiðna miklu Rannoc Moor, síðan niður til Kingshouse.

Ganga: 16 km - Hækkun: 300 m

 

 

Dagur 4: Kingshouse - Kinlochleven

Hér er gengið upp hinn fræga Devil's Staircase ( Djöflastigann), hér er hæsti punktur á leiðinni eða 530 m. Þetta er ekki eins erfitt eins og nafnið segir til um heldur hinn besti stígur upp og á toppnum er fögur fjallasýn hvert sem litið er. Þaðan liggur leiðin til Kinlochleven sem er næst stærsti bærinn á leiðinni.

Ganga: 14,5 km - Hækkun: 540 m

 

 

Dagur 5: Kinlochleven - Fort William

Lokadagurinn runninn upp. Stemning í hópnum þegar hann gengur upp hlíðar Kinlocleven og áleiðis til Fort William. Munum ganga dali,skóga og við rætur Ben Nevis, hæsta fjalls Bretlandseyja (1.344 m).

Ganga: 22,5 km - Hækkun: 300 m

 

 

Dagur 6: Fort William  - Glasgow 

Keyrt til Glasgow, ferðin tekur 3 tíma. Farið verður með farangur og fólk á gististaðinn og síðan er frjáls dagur + kvöld. Kjörið að heimsækja Edinborg (50 mín. með lest) eða spóka sig um í Glasgow.

 

Dagur 7: Heimferð

Ekið til Glasgow flugvallar kl. 12:00. Flogið heim til Íslands kl. 14:20.