S K O T G A N G A
 

Windemere Way (73 km) gengnir á 4 dögum

Windemere Way er stórfengleg gönguleið í kringum Lake Windemere, stærsta stöðuvatn Englands staðsett í hjarta Vatnahéraðsins (Lake District).

Vatnahéraðið er fjöllótt svæði í norðvestur Englandi og nýtur gríðarlegra vinsælda meðal ferðamanna og útivistafólks, enda af mörgum talið fegursta svæði landsins. Þar er að finna hæstu fjöll og stærstu og dýpstu vötn Englands.

 

Gist verður í 6 nætur á Belsfield Hoteli í Bowness (http://www.corushotels.com/the-belsfield-hotel/). Hótelið er afar vel staðsett og hefur m.a. að geyma veitingasal, bar, sundlaug og sauna.

Bowness er afar fallegur og vinsæll ferðamannabær við Lake Windemere. Í bænum er að finna ógrynni veitingastaða , kaffihúsa, kráa og verslana svo eitthvað sé nefnt.

 

Dagur 1: Manchester - Bowness

 

Lent á Mancester flugvelli kl. 11:35, þaðan er ekið sem leið liggur til Bowness, þar sem gist verður næstu 6 nætur.

 

Dagur 2: Bowness til Ambleside - 16 km

 

Gangan hefst við hótelið og gengið til Ambleside sem er við norður enda vatnsins. Þaðan er keyrt til baka á hótelið.

 

Dagur 3: Ambleside til Ferry House - 21.5 km

 

Ekið til Ambleside. Gengið upp í hlíðarnar norður af vatninu og síðan í suður til Ferry House.  Þaðan er siglt yfir til Bowness.

 

Dagur 4: Ferry House til Lakeside - 12 km

Siglt yfir frá Bowness til Ferry House. Þaðan er gengið til Lakeside sem er við suðurenda vatnsins. Þaðan er keyrt til baka á hótelið.

 

Dagur 5: Lakeside til Bowness - 23.5 km

Ekið til Lakeside. Þaðan er gengið til Bowness.

Dagur 6: Bowness

Frjáls dagur í Bowness

 

Dagur 7: Bowness - Glasgow

 

Ekið til Glasgow flugvallar. Flug til Íslands kl. 14:05.