Dekurferð - Tenerife (12. nóv)

Lengd ferðar

7 nætur

Sætafjöldi

30

Flugfélag

Icelandair

Kvennaferð

Dekurferð - Tenerife (12. nóv)

12. - 19. nóvember 2024

Fjölbreytt dagskrá fyrir þær vilja vera í skemmtilegum hópi kvenna og hafa gaman. Hér erum við komnar til að njóta og kynnast nýjum konum, og eru stakar konur sérstaklega hvattar til þess að skrá sig.

Puerto de la Cruz hefur endalaust upp á eitthvað að bjóða, fallegar þröngar götur með fagurlega máluðum húsum í öllum regnbogans litum og er hvergi skemmtilegra að fara á kvöldrölt en þar. 


Herbergi

Verð fyrir einstakling með flugi

Almennt verð £1,685.00
Almennt verð Sölu verð £1,685.00
Innáborgun: £300.00


Flug

Þú hefur valið að taka þátt í hópbókun. Innifalið í flugi er ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg. Vinsamlegast athugið að hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Ekki er hægt að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun.

Almennt verð £1,685.00
Almennt verð Sölu verð £1,685.00
Innáborgun: £300.00


Farþegi 1
Almennt verð £1,685.00
Almennt verð Sölu verð £1,685.00
Innáborgun: £300.00
Herbergi
Flug

How often?

Subscribe to get regular deliveries of this product

Dekurferð - Tenerife (12. nóv)
Dekurferð - Tenerife (12. nóv)
Dekurferð - Tenerife (12. nóv)
Dekurferð - Tenerife (12. nóv)
Dekurferð - Tenerife (12. nóv)
Dekurferð - Tenerife (12. nóv)
Dekurferð - Tenerife (12. nóv)
Dekurferð - Tenerife (12. nóv)
Dekurferð - Tenerife (12. nóv)
Dekurferð - Tenerife (12. nóv)
Dekurferð - Tenerife (12. nóv)
Dekurferð - Tenerife (12. nóv)
Dekurferð - Tenerife (12. nóv)

Ferðaáætlun

Skemmtun, sól og sæla á Puerto de la Cruz

Flug FI580 með Icelandair kl. 08:40 og lent á Tenerife kl. 14:05. Helga kemur með hópnum út og Inga tekur á móti hópnum á Tenerife flugvelli. Þaðan er ekið á Hotel AF Valle Orotava**** í Puerto de la Cruz.

Kl. 18:00 er kynningarfundur á barnum.

Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

5 tímar & 25 mín
1 tími

Um morguninn býður Inga upp á kynningargöngu um svæðið. Gengið er frá hóteli og að gamla bænum sem er fallegur með sínum einstaka stíl og karakter.

Seinnipartinn verður Helga með vatnsleikfimi, teyjur og slökun í sundlauginni á þaki hótelsins. Eftir það hittist hópurinn í hannyrðahorninu í hópaverkefni.

Ekið í ca. 30 mín til Icod de los Vinos, þar sem við munum heimsækja vinsælt fiðrildasafn með meira en 800 fiðrildum frá öllum heimshornum. Eftir það er frjáls tími og þá er hægt að skoða El drago, sem er talið vera elsta drekatré í heimi, setjast í hádegisverð og skoða sig um eða kíkja í verslanir.

Síðan tekur við um hálftíma akstur á bananabúgarðinn í La Orotava og þar fáum við leiðsögn um garðinn. Eftir það er ekið heim á hótel og tekur það um 15 mínútur. Eftir það er frjáls tími tilvalið að taka leigubíl í ca. 15 mínútur til Centro Comercial La Villa en þar er að finna úrval verslana.

Siðan er vatnsleikfimi og hannyrðahorn.

Við byrjum daginn á morgungöngu meðfram strandlengjunni og sjósundi. Síðan er frjáls tími og tilvalið að fá sér hádegisverð í bænum, skoða sig um og kíkja í einhverjar af verslununum sem þar eru.

Hannyrðahornið er á sínum stað seinnipartinn á hótelinu.

Eftir kvöldmat röltum við saman um miðbæinn en þar er að finna mikið af tónlistarfólki úti á götu og margir staðir bjóða upp á að dansa. Tilvalið að setjast inn á einn staðinn í flottan drykk og njóta lífsins.

Hægt er að slappa af á hótelinu, rölta um bæinn eða heimsækja Loro Parque sem hefur oft verið valinn besti dýragarður í heimi. Það er upplifun að fara í dýragarðinn sem er rétt hjá og öðruvísi að fara bara sem fullorðin án barna. Velja sér algjörlega það sem heillar hverja og eina mest og staldra þar við og njóta í rólegheitunum.

Boðið verður upp á göngu með fararstjóra fyrir hádegi á flóamarkaðinn el Rastro sem er opinn alla laugardaga fyrir þær sem vilja. Það er spennandi upplifun að gramsa, skoða og finna eitthvað eitt eða tvennt sem heillar og gaman er að.

Eftir morgunverð er gengið að orkíteugarðinum Jardin de Orquideas de Sitro Litre. Við skoðum okkur þar um stund og göngum svo saman að grasagarðinum Jardín Botánico. Frjáls tími til að skoða sig um garðinn, setjast í drykk á veitingastað til hliðar við garðinn og/eða kíkja í verslanir.

Á leiðinni til baka er stoppað við litríkar tröppur sem voru málaðar til heiðurs Agatha Christie. Hver trappa táknar einn af bókakjölum bóka hennar en Agatha hreifst mjög af Puerto de La Cruz, þegar hún kom þangað 1927. Eftir hádegi er í boði sundleikfimi og hannyrðahornið á sínum stað.

Gengið er frá hóteli og meðfram ströndinni. Þar ætlar Helga að bjóða þeim sem vilja í sjósund og aðrar geta rölt lengra með Ingu.

Síðan er frjáls tími. Tilvalið að nýta sér aðstöðuna á hótelinu, leggjast í sólbað eða á efstu hæð hótelsins eða fara í SPA. Eins er hægt að fara í Lago Martiánez sem er fallegur sundlaugargarður við sjóinn.

Seinnipartinn hittumst við i síðasta hannyrðahorninu.

Við hittumst síðan í sal á hóteli kl. 18:00 og við skorum á allar að klæðast einhverju bleiku um kvöldið. Gaman saman í sal á hótelinu og síðan förum við saman út að borða um kvöldið.

Frjáls dagur fram að brottför. Kl. 11:00 er ekið frá hóteli til Tenreife flugvallar. Flug FI581 kl. 15:05 og lent kl. 20:35.

1 tími
5 tímar & 30 mín

Hvað er innifalið

  • Áætlunarflug með Icelandair KEF-TFS
  • Áætunarflug með Icelandair TFS-KEF
  • Ein taska hámark 23kg 10kg handfarangur
  • Flugvallarskattar
  • Gistingar með morgunverði í 7 nætur
  • 6 kvöldverðir á hóteli
  • 1 kvöldverður á veitingastað
  • Allur akstur skv. dagskrá
  • Sundleikfimi & sjósund
  • Aðgangseyrir í fiðrildasafnið
  • Aðgangseyrir í grasagarðinn
  • Aðgangseyrir í orkíteugarðinn
  • Aðgangseyrir á bananabúgarðinn
  • Íslensk fararstjórn
  • Skattar & tryggingagjöld í UK

Ekki innifalið

  • Hádegisverðir
  • Drykkir með mat
  • Ferðatryggingar
  • Þjórfé fyrir bílstjóra í skoðunarferðum
Fararstjóri

Inga Geirsdóttir

Inga er frá Eskifirði, bjó í Reykjavík um árabil en flutti til Skotlands árið 2003. Þar hóf hún fljótlega að bjóða vinkonum sínum í göngur um skosku Hálöndin. Það vatt hratt upp á sig og í dag leiðir hún ásamt fjölskyldu sinni hópferðir vítt og breitt um Bretland, Írland, Austurríki, Slóveníu, Króatíu, Ítalíu og Spán. Inga er mikill húmoristi og þykir ekkert skemmtilegra en að vera með hópunum sínum.

Fararstjóri

Helga Unnarsdóttir

Helga er Eskfirðingur en býr nú í Reykjavík. Hún er íþróttakennari að mennt og einnig leirkerasmiður sem hvort tveggja kemur að góðu gagni í ferðunum okkar.

Helga hefur verið með okkur í Skotgöngu frá árinu 2007, en þá kom hún með í hópferð sem „hali“ á göngu upp skosku Hálöndin. Henni þykir fátt betra en að vera í góðum hópi kvenna, að leika saman og hafa gaman.

Algengar spurningar

Veðurfar fyrir norðan er oft á mildara og að margra mati þægilegra loftslag þar sem meðalhiti er í kringum 16- 21 stig á daginn yfir vetrar mánuðina.

Hægt er að framlengja ferðina og njóta sólinarinnar á suðurhlutanum en þar er hitastig jafnt allan ársins hring með hita um 20- 22 gráður.

Hotel AF Valle Orotava er fjögurra stjörnu gisting í hjarta Puerto de la Cruz.

Hótelið er nýuppgert með veitingastað, börum og sundlaug á þaki hótelsins með stórkostlegu útsýni yfir bæinn.

Herbergin eru rúmgóð, með ísskáp, sjónvarpi, skrifborði og fataskáp. Öll herbergin eru með svalir og sér baðherbergi með sturtu og hárblásara.

Ókeypis WiFi og reglulega er skemmtidagskrá á hótelbarnum á kvöldin.

Því miður er ekki hægt að fá þriggjamanna herbergi í þessari ferð en hægt að biðja um herbergi hlið við hlið.

Skotganga (Scot Walks Ltd) er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi, UK.

Ef einhver kemst ekki í þá ferð sem viðkomandi hefur bókað í, er ekki hægt að fá endurgreiðslu á innáborgun né færa innáborgun yfir á aðra ferð. Við mælum með því að fólk skoði forfallatryggingar sem tengjast kredikortum sínum eða skaffi sér sérstaka ferðatryggingu.

Það er því miður ekki lengur möguleiki að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun með Icelandair. Þeir sem vilja nota vildarpunkta geta valið að kaupa sitt flug sjálfir á heimasíðu Icelandair.

Þátttaka í hópbókun krefst að minnsta kosti 10 farþega. Ef lámarksþáttaka næst ekki, gilda reglur og skilyrði hópsins ekki lengur.

Farangursheimild, ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg er innifalin.

Hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Breyting verður að gerast áður en flugmiði er gefinn út.

Ef þátttakandi bókar ferðina með röngu nafni, getur Icelandair krafist nafnabreytingar gegn ákveðnu gjaldi.

Allar breytingar og aðrar fyrirspurnir varðandi flug þurfa að fara í gegnum Skotgöngu, þar sem um hópbókun er að ræða.

Hægt er að kaupa flugið út í hópbókun en ekki er hægt að kaupa flug fyrir heimferð eingöngu. Hægt er að tala við ferðaskrifstofuna (Skotgöngu) með breytingu á heimferð frá öðru landi í þeim tilfellum sem fólk er að ferðast annað eftir ferðina.

Lokagreiðsla á ferð er 10 vikum fyrir brottför. Þátttakendur munu fá tilkynningu þegar kemur að lokagreiðslu.