Kvennaferð
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
2. - 9. oktober 2027
Í hjarta Alsace bíður okkar ævintýri þar sem haustlitir, góð vín og frönsk lífsnautn leika aðalhlutverkið. Í þessari ferð gefum við okkur tíma til að njóta. Við röltum um heillandi þorp, kynnumst mat, vínum og hefðum Alsace og eigum góðar stundir saman. Riquewihr verður okkar heimili þessa daga – fallegur staður til að vakna á, leggja upp í ævintýri frá og koma heim til að kvöldi.
Ertu með spurningu um ferðina?
Hér getur þú sent okkur skilaboð
Ferðaáætlun
Hvað er innifalið
- Áætlunarflug Icelandair KEF-ZRH
- Áætlunarflug Icelandair ZRH-KEF
- Ein taska max 23 kg & 10 kg handfarangur
- Flugvallarskattar
- Gisting í 7 nætur með morgunverði
- 6 kvöldverðir
- Vínsmakk
- Aðgangseyrir í ostasafn
- Aðganseyrir í textílsafn
- Aðgangseyrir í Eco Museum
- Allur akstur skv. dagskrá
- Íslensk fararstjórn
- Skattar & lögboðin tryggingagjöld
Ekki innifalið
- Ferðatryggingar
- 1 kvöldverður
- Hádegisverðir
- Drykkir með mat
- Þjórfé fyrir bílstjóra
Fararstjóri
Inga Geirsdóttir
Fararstjóri