Ferðin mín

Kvennaferð

Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)

5. - 12. nóvember 2024

Einstök vikudvöl á Norður hluta Tenerife, Puerto de la Cruz fyrir konur á öllum aldri.  Jákvæð og uppbyggjandi dagskrá með vönduðu námskeiði hjá Kristínu Lindu sálfræðingi, fyrrum ritstjóra Húsfreyjunnar og skemmtilegar göngu- og skoðunarfeðir með hinum glaðværa fararstjóra, Ingu Geirs.

Ertu með spurningu um ferðina?

Hér getur þú sent okkur skilaboð

Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)
Upplifun á Norður Tenerife (5. nóv)

Ferðaáætlun

Gleðistundir og hamingjuráð á Puerto de la Cruz

Flug FI580 með Icelandair kl. 08:40 og lent á Tenerife kl. 14:05. Kristín Linda kemur með hópnum út og Inga tekur á móti hópnum á Tenerife flugvelli. Þaðan er ekið á Hotel AF Valle Orotava**** í Puerto de la Cruz.

Kl. 18:00 er kynningarfundur á barnum.

Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

5 tímar & 25 mín
1 tími

Eftir morgunverð kl: 9.30 – 12.30 verður fræðslustund/námskeið með Kristínu Lindu: Jákvæð sálfræði, hagnýt hamingjuráð, skemmtileg kynni og samvera, að njóta sín í ferðinni og lífinu!


Eftir hádegi býður Inga upp á kynningargöngu um svæðið. Gengið er frá hóteli og að gamla bænum sem er fallegur með sínum einstaka stíl og karakter.


Síðan er frjáls tími og tilvalið að vera eftir í bænum, hafa gaman saman, kíkja í búðir og fá sér hádegisverð á einhverjum af þeim heillandi stöðum sem þar eru.

Við byrjum á að aka í ca. 20 mínútur til La Orotava dalsins. Þar munum við skoða gamalt höfðingjasetur og eftirminnilegt handiðnaðarsafn en þar inni er m.a. að finna handverk frá eyjunni, bæði bróderý og útskorin húsgögn. Síðan ökum við í ½ tíma til Icod de los Vinos. Þar bíður okkar stórkostleg upplifun því við heimsækjum Drago Buterfly Garden, lifandi og vinsælt fiðrildasafn með meira en 800 fiðrildum frá öllum heimshornum. Eftir það er frjáls tími og til dæmis hægt að skoða hið mikilfenglega El drago, sem er talið vera elsta drekatré í heimi, njóta samveru og veitinga á veitingastöðum.

Eftir morgunverð, kl: 9.30 – 12.30 verður fræðslustund/námskeið með Kristínu Lindu: Hagnýt hamingjuráð og sálfræði, fegurð, flæði, fögnuður og fleira gott.Síðan tekur Inga við og gengið er í grasagarðinn Jardín Botánico, Frjáls tími til að skoða sig um garðinn, setjast í drykk á veitingastað til hliðar við garðinn og/eða kíkja í verslanir. Upplifum fegurðina og njótum! Á leiðinni til baka er stoppað við litríkar tröppur sem voru málaðar til heiðurs Agatha Christie. Hver trappa táknar einn af bókakjölum bóka hennar en Agatha hreifst mjög af Puerto de La Cruz, þegar hún kom þangað 1927. Algjört ljósmyndatækifæri!Frjáls eftirmiðdagur. Tilvalið að nýta sér aðstöðuna á hótelinu, leggjast í sólbað á efstu hæð hótelsins eða fara í SPA. Eins er hægt að fara í Lago Martiánez sem er fallegur sundlaugargarður við sjóinn.

Hægt er að slappa af á hótelinu, rölta um bæinn eða heimsækja Loro Parque sem hefur oft verið valinn besti dýragarður í heimi. Það er upplifun að fara í dýragarðinn sem er rétt hjá og öðruvísi að fara bara sem fullorðin án barna. Velja sér algjörlega það sem heillar hverja og eina mest og staldra þar við og njóta í rólegheitunum.

Boðið verður upp á göngu með fararstjóra fyrir hádegi á flóamarkaðinn el Rastro sem er opinn alla laugardaga fyrir þær sem vilja. Það er spennandi upplifun að gramsa, skoða og finna eitthvað eitt eða tvennt sem heillar og gaman er að.

Eftir morgunverð, kl: 9.30 – 12.30 verður fræðslustund/námskeið með Kristínu Lindu: Allskonar gagnlegt um lífsgæði og betri líða. Eftir það er frjáls tími, tilvalið að taka leigubíl í ca. 15 mínútur til Centro Comercial La Villa en þar er að finna úrval verslana eða njóta lífsins á hótelinu.

Seinnipartinn er gengið niður að strönd og til gamans höfum við hvítt þema, Hvítu gyðjurnar. Það skapar skemmtilega stemmingu og auka upplifun að ganga allar saman í okkar hvítustu fötum um bæinn og á svörtu ströndina og þar tökum við myndir, hver af annarri og af hópnum, fjör og gleði.

Skoðunarferð til La Lagauna, gömlu höfuðborgar Tenerife. Við byrjum á því að aka í ca. 40 mínútur og við tekur frjáls tími í bænum í 3 tíma og þá er hægt að skoða sig um og fara í hádegisverð.Það er upplifun að heimsækja La Lagauna sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Einstaklega fallegur bær með litríkum húsum. Þar er eins að finna mikið af söfnum svo sem Museo de Historia sem er safn um sögu Tenerife.

Kjólakvöld – gleði – kærleikur og samvera: Sameiginlegur kvöldverður í bænum.

Frjáls dagur fram að brottför. Kl. 11:00 er ekið frá hóteli til Tenreife flugvallar. Flug FI581 kl. 15:05 og lent kl. 20:35.

1 tími
5 tímar & 30 mín

Hvað er innifalið

  • Áætlunarflug með Icelandair KEF-TFS
  • Áætlunarflug með Icelandair TFS-KEF
  • Ein taska hámark 23kg & 10kg handfarangur
  • Flugvallaskattar
  • Gistingar með morgunverði í 7 nætur
  • 6 kvöldverðir á hóteli
  • Kvöldverður á veitingastað
  • Allur akstur samkv. dagskrá
  • Fræðslustundir í sal á hóteli
  • Aðgangseyrir í heimilisiðnaðarsafnið
  • Aðgangseyrir í fiðrildasafnið
  • Aðgangseyrir í grasagarðinn
  • Íslensk fararstjórn
  • Skattar & tryggingagjöld í UK

Ekki innifalið

  • Hádegisverðir
  • Drykkir með mat
  • Ferðatryggingar
  • Þjórfé fyrir bílstjóra í skoðunarferðum
Fararstjóri

Inga Geirsdóttir

Inga er frá Eskifirði, bjó í Reykjavík um árabil en flutti til Skotlands árið 2003. Þar hóf hún fljótlega að bjóða vinkonum sínum í göngur um skosku Hálöndin. Það vatt hratt upp á sig og í dag leiðir hún ásamt fjölskyldu sinni hópferðir vítt og breitt um Bretland, Írland, Austurríki, Slóveníu, Króatíu, Ítalíu og Spán. Inga er mikill húmoristi og þykir ekkert skemmtilegra en að vera með hópunum sínum.

Fararstjóri

Kristín Linda Jónsdóttir

Kristín Linda er sálfræðingur á eigin sálfræðistofu Huglind í Reykjavík. Hún hefur haldið fjölda vinsælla námskeiða og fyrirlestra um hvernig fólk getur bætt líðan sína, lífsgæði, heilsu og hamingju.

Hún byggir á nýjustu sálfræðilegri þekkingu og námskeiðin hennar eru þekkt fyrir að vera bæði efnismikil og hagnýt og lífleg og skemmtileg. Hún er reyndur sálfræðingur, kemur úr Þingeyjarsýslu en býr í Grindavík og var í 20 ár ritstjóri tímaritsins Húsfreyjunnar.

Algengar spurningar

Veðurfar fyrir norðan er oft á mildara og að margra mati þægilegra loftslag þar sem meðalhiti er í kringum 16- 21 stig á daginn yfir vetrar mánuðina.

Hægt er að framlengja ferðina og njóta sólinarinnar á suðurhlutanum en þar er hitastig jafnt allan ársins hring með hita um 20- 22 gráður.

Hotel AF Valle Orotava er fjögurra stjörnu gisting í hjarta Puerto de la Cruz. Hótelið er nýuppgert með veitingastað, börum og sundlaug á þaki hótelsins með stórkostlegu útsýni yfir bæinn.

Herbergin eru rúmgóð, með ísskáp, sjónvarpi, skrifborði og fataskáp. Öll herbergin eru með svalir og sér baðherbergi með sturtu og hárblásara.

Ókeypis WiFi og reglulega er skemmtidagskrá á hótelbarnum á kvöldin.

Ef einhver kemst ekki í þá ferð sem viðkomandi hefur bókað, er ekki hægt að færa innáborgunina yfir á aðra ferð. Við mælum með því að fólk skoði forfallatryggingar sem tengjast kredikortum sínum eða skaffi sér sérstaka ferðatryggingu þar sem innáborgun á ferð er óafturkræf.

Vegabréf – passa að kanna gildistíma tímanlega fyrir flug.

Flugmiða – flugmiðar verða sendir á netföngin ykkar frá Skotgöngu.

Leyninúmeri (PIN) fyrir kredit/debet kort – ATH Geymið ekki númerið hjá kortunum

Evrópsku sjúkratryggingakorti - umsókn og upplýsingar er að finna á vefslóðinni: http://www.sjukra.is eða í síma 515-0000 (kortið gildir í 3 ár).

Vinsamlegast athugið að þetta kort kemur ekki í staðinn fyrir ferðatryggingu.

Lyf – ef einhver eru (passa að hafa þau í handfarangri í flugi).  

Fatnaður – léttir gönguskór, derhúfa/höfuðfat, ýmis fatnaður, íþróttaskór & sandalar, léttur regnfatnaður og sundföt. 

Annað – sólgleraugu, sólarvörn & aftersun, mittisbudda/innáveski, skrifblokk og penna.

Við mælum með að hafa með einhvern gjaldeyri í ferðina (evrur). 

Þegar reikningar fara yfir ákveðna upphæð þá kemur stundum fyrir að færslan er stoppuð eins og úttektarheimild sé ekki fyrir henni. Flestir bankar eru með eins konar "áhættuþröskuld" á greiðslum, þannig að það þarf að taka hann af tímabundið til að greiðsla gengi í gegn. Svo ef þið lendið í vandræðum með að greiða þá hringið þið í bankann ykkar og látið vita að þið séuð að reyna að greiða reikning til UK og þá opnar bankinn á færsluna.

Við sjáum ekki um að bóka farþega í ákveðin flugsæti en sendum nafnalista til Icelandair ásamt beiðni að þeir sem eru saman í herbergi sitji saman í vélinni.

Vinsamlegast athugið að sætisóskir eru um beiðni að ræða, ekki bókað eða staðfest sæti. Ef vélarbreyting verður skömmu fyrir brottför geta sætisóskir færst til og breyst.

Hægt er að fara inn á vef Icelandair 24 tímum fyrir brottför og innrita sig með bókunarnúmeri. Þá er hægt að skoða hvort hægt sé að velja ný sæti.

Vegna persónuverndar er ekki sendur út þátttökulisti á farþega. Aftur á móti þá munum við gera lokaða Facebook síðu fyrir ferðina og þar er ykkur frjálst að gerast meðlimir. Þar getið þið séð ferðafélaga ykkur, sent inn spurningar og deilt myndum í ferðinni.