Malta (12. okt)

Lengd ferðar

7 nætur

Erfiðleikastuðull

Miðlungs

Sætafjöldi

32

Gönguferð

Malta (12. okt)

12. - 19. oktober 2026

Malta er lítil eyja suður af Sikiley með yfir 7.000 ára sögu. Möltubúar eru þekktir fyrir hlýju sína, gestrisni og örlæti við ókunnuga, eiginleiki sem fjallað um í Postulasögunni, með vísan til reynslu heilags Páls postula, sem var sagður hafa orðið skipbrotsmaður við Möltu árið 60 e.Kr.

Margar fallegar gönguleiðir er að finna á Möltu. Er einkum gengið meðfram strandlengjunni og eru gönguleiðirnar sem við höfum valið við flestra hæfi. Í þessari ferð munum við einnig heimsækja systur eyjur Möltu - Gozo og Comino. 


Herbergi

Verð fyrir einstakling í tvíbýli með flugi. Ekki er hægt að bóka nema vera með ferðafélaga.

Almennt verð £2,230.00
Almennt verð Sölu verð £2,230.00
Innáborgun: £300.00


Flug

Þú hefur valið að taka þátt í hópbókun. Innifalið í flugi er ein taska sem vegur 20 kg og 10 kg handfarangur. Ekki er hægt að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun.

Almennt verð £2,230.00
Almennt verð Sölu verð £2,230.00
Innáborgun: £300.00


Farþegi 1
Almennt verð £2,230.00
Almennt verð Sölu verð £2,230.00
Innáborgun: £300.00
Herbergi
Flug

How often?

Subscribe to get regular deliveries of this product

Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)
Malta (12. okt)

Ferðaáæltun

Gönguferð um töfrandi strandlengjur Möltu

Flug LH 847 með Lufthansa kl. 00:25 og lent á Frankfurt flugvelli kl. 05:55. Flug LH 1310 kl. 09:30 og lent á Möltu kl. 12:05.

Fararstjórar taka á móti hópnum á flugvellinum í Möltu. Ekið þaðan á AX Hotel ODYCY í Qawra, en þar verður gist fyrstu 4 næturnar í ferðinni.

6 tímar & 5 mín
40 mín

Ekið stutta vegalengd til Xemxija á austurströnd Möltu.

Í dag er gengið í ca. 3 tíma. Við fylgjum Heritage Trail á fornum rómverskum vegaslóða til Mizieb skógar, förum fram hjá Manikata þorpinu og göngum í gegnum Majistral Nature Park og þaðan yfir á vesturströndina. Endum gönguna við Popeye Village, sem vartökustaður kvikmyndarinnar um Stjána bláa með Robin Williams í aðalhlutverki. Frjáls tími þar til að skoða sig um og snæða hádegisverð.

Síðan ekið til baka á hótel. Frjáls eftirmiðdagur og kvöld.

Ekið til Cirkewaa ferjuhafnarinnar á norðurströndinni.

Þar tökum við bát sem siglir með okkur til eyjarinnar Comino. Siglingin tekur 10 mínútur. Komum í land í Blue Lagoon þar sem gangan hefst. Göngum hringleið (ca. 3 tímar) á eyjunni en tökum síðan bát til Cirkewaa.

Ekið til baka á hótelið. Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

Ekið til Gnejna Bay á vesturströnd Möltu.

Göngum að Lippija Tower, áfram skagann framhjá Riviera Bay og Quarraba Point. Gangan endar á Golden Bay. Þar verður frjáls tími í klukkustund til að fá sér hádegismat. Ökum síðan til baka á hótelið.

Frjáls eftirmiðdagur og kvöld

Tékkum út af hótelinu og ökum við til Cirkewaa ferjuhafnarinnar. Þar tökum við ferju yfir til eyjarinnar Gozo.Siglingin tekur 30 mínútur.

Gengið meðfram vesturströnd Gozo frá Xatt I-Ahmar áleiðis til Xlendi Bay (ca. 3 tímar). Eftir gönguna er sameiginlegur hádegisverður í Xlendi. Síðan ökum við til Ggiantija Archeological Park. Þar ætlum við að skoða 5.600 ára steinaldamynjar. Ökum þaðan til mjög sérstæðs bóndabæjar (Dreams of Horses Farm) og kynnum okkur starfsemina. Ekið þaðan til ferjuhafnarinnar í Gozo og tökum ferjuna til baka til Möltu.

Að lokum ekið á hótelið okkar í Sliema, AX Victoria Hotel. Þar gistum við síðustu 3 næturnar í ferðinni. Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

Skammt frá hótelinu okkar er ferjuhöfnin í Sliema. Þaðan tökum við ferju yfir til Valetta, höfuðborgar Möltu. Borgin er rík af listum, arkitektúr og sögu, auk staða til að njóta góðs matar og drykkja.

Við förum í stutta gönguferð í borginni og fræðumst um sögu hennar. Að því loknu tekur við frjáls tími til að skoða sig um, versla og snæða hádegisverð.

Ökum til Marsaskala sem er bær á suð-austur stönd Möltu. Þaðan er gengið fallega strandleið til Marsaxlokk.

Marsaxlokk er fallegt sjávarþorp á suðausturhluta Möltu. Bærinn er vinsæll ferðamannastaður og hafnarstæðið með fjölmörgum fiskibátum er afar myndrænt.

Þar verður gefinn frjáls tími til að skoða sig um og snæða hádegisverð. Síðan er ekið til baka á hótelið okkar í Sliema.

Ekið til Malta Airport. Flug LH 1313 með Lufthansa kl. 17:00 og lent í Frankfurt kl. 19:45. Flug LH 846 kl. 21:45 og lent í Keflavík kl. 23:30.

30 mín
6 tímar & 30 mín

Hvað er innifalið

  • Áætlunarflug Lufthansa KEF-FRA
  • Áætunarflug Lufthansa FRA-MLA
  • Áætlunarflug Lufthansa MLA-FRA
  • Áætunarflug Lufthansa FRA-KEF
  • Ein taska hámark 20 kg & 8 kg handfarangur
  • Flugvallarskattar
  • Ferjur – Valetta, Comino & Gozo
  • 4 kvöldverðir með drykkjum
  • 1 hádegisverður
  • Innlend fararstjórn á 4 göngudögum
  • Íslensk fararstjórn
  • Skattar & tryggingagjöld

Ekki innifalið

  • Ferðatryggingar
  • 3 kvöldverðir
  • 5 hádegisverðir
Fararstjóri

Snorri Guðmundsson

Snorri er Reykvíkingur, en hefur búið í Skotlandi síðan 2002. Hann stofnaði ferðaþjónustufyrirtækið Scot Walks Ltd (Skotgöngu) árið 2008 ásamt eiginkonu sinni, Ingu Geirsdóttur. Snorri er menntaður tölvunarfræðingur og starfar sem slíkur en er einnig framkvæmdastjóri Skotgöngu. Snorri hefur ávallt haft ástríðu fyrir ferðalögum og hefur einnig sérlegan áhuga á sögu & menningu, gönguferðum í óspilltri náttúru, knattspyrnu, tónlist, golfi og skosku maltviskíi.

Fararstjóri

Inga Geirsdóttir

Inga er frá Eskifirði, bjó í Reykjavík um árabil en flutti til Skotlands árið 2003. Þar hóf hún fljótlega að bjóða vinkonum sínum í göngur um skosku Hálöndin. Það vatt hratt upp á sig og í dag leiðir hún ásamt fjölskyldu sinni hópferðir vítt og breitt um Bretland, Írland, Austurríki, Slóveníu, Króatíu, Ítalíu og Spán. Inga er mikill húmoristi og þykir ekkert skemmtilegra en að vera með hópunum sínum.

Algengar spurningar

Þó að við getum aldrei treyst á veðrið, er október talinn vera frábær tími fyrir gönguferðir á Möltu með um 20-25 stiga hita.

Göngustígarnir eru malarstígar, stundum grófir en yfirleitt auðveldir yfirferðar.

Það er ekkert mál að taka frídaga. Gönguleiðirnar eru frekar stuttar (6-10 km), fyrsta göngudaginn er hægt að ganga hluta leiðarinnar og snúa við á upphafsstað fyrir þá sem vilja stytta gönguna, en hina dagana er verið að ganga á milli staða og þar þarf annaðhvort að ganga alla leiðina eða sleppa göngunni.

AX ODYCY Hotel Qawra**** (4 nætur)

Hótelið er með útsýni yfir Miðjarðarhafið og býður upp á 4 sundlaugar þar af þaksundlaug sem er aðeins fyrir fullorðna, 4 veitingastaði, bar og heilsulind.

Herbergin eru nútímaleg með loftkælingu,skrifborði, sérbaðherbergi, sjónvarpi og sérsvölum.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu.

 

AX The Victoria Hotel Sliema**** (3 nætur)

Hótelið er staðsett í hjarta Sliema, 1 km frá Point-verslunarmiðstöðinni og í aðeins 5 mínútna göngufæri við sjávarsíðuna. Hótelið er með 2 sundlaugar, veitingastað, líkamsræktarstöð og heilsulind.

Herbergin eru rúmgóð með loftkælingu, te & kaffi aðstöðu og sjónvarpi.

Hótelið býður upp á frítt internet.

Því miður er ekki hægt að vera 3 saman í herbergi. Þau sem ferðast 3 saman geta sent inn beiðni um að fá herbergi hlið við hlið.

Það er því miður ekki möguleiki að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun. Þeir sem vilja nota vildarpunkta geta valið að kaupa flug á eigin vegum.

Já það þarf ekki að sækja töskur á milli fluga.

Skotganga (Scot Walks Ltd) er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi, UK.

Ef einhver kemst ekki í þá ferð sem viðkomandi hefur bókað í, er ekki hægt að fá endurgreiðslu á innáborgun né færa innáborgun yfir á aðra ferð. Við mælum með því að fólk skoði forfallatryggingar sem tengjast kredikortum sínum eða skaffi sér sérstaka ferðatryggingu.

Lokagreiðsla á ferð er 10 vikum fyrir brottför. Þátttakendur munu fá tilkynningu þegar kemur að lokagreiðslu.