Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)

Lengd ferðar

9 nætur

Erfiðleikastuðull

Miðlungs

Sætafjöldi

32

Gönguferð

Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)

1. - 10. oktober 2027

Í þessari gönguferð kynnumst við stórbrotinni náttúru, heillandi menningu og ríkulegri  sögu Norður-Makedóníu og Albaníu. Við heimsækjum höfuðborgirnar Skopje og Tirana, skoðum sögufræga staði og göngum fallegar leiðir í tilkomumilklu landslagi og yndislegum bæjum. Þessi spennandi lönd eiga margt sameiginlegt en búa jafnframt yfir ólíkri sögu, menningu og sérkennum sem gera ferðina einstaklega fjölbreytta.

Skrá á póstlista


Takk fyrir skráninguna!

Villa kom upp - vinsamlegast reyndu aftur

Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)
Norður-Makedónía & Albanía (1. okt)

Ferðaáæltun

Gönguævintýri á földum perlum Balkansskagans

Flug LO 500 kl. 00:45 með Lot Polish Airlines og milli lent í Warsaw kl. 06:45. Flug LO 593 kl. 14:40 frá Warsaw, lent í Skopje höfuðborg Norður-Makedóníu kl. 16:45.

Fararstjórar taka á móti hópnum á flugvellinum. Ekið inn í miðborg Skopje og tékkað inn á Hotel Solun 4* þar sem við munum gista fyrstu 2 næturnar í ferðinni.

30 mínútur
Kvöldverður

Eftir morgunverð hittum við staðarleiðsögumann sem leiðir okkur í gönguferð um miðborg Skopje og gamla bæinn, ca. 4 km. Við kynnumst áhugaverðri blöndu byggingarstíla, menningaráhrifa og sögu borgarinnar.

Við hefjum gönguna á Makedóníutorgi, aðaltorgi borgarinnar, sem er þekkt fyrir stórbrotnar styttur og glæsilegar byggingar. Þaðan göngum við yfir hina sögufrægu Steinbrú (Stone Bridge), sem liggur yfir Vardar-ána, og höldum inn í gamla markaðinn (Old Bazaar). Hann er einn stærsti markaður Balkanskagans, með þröngum götum, sögulegum moskum, litlum verslunum og notalegum kaffihúsum. Einnig heimsækjum við minningarhús Móður Teresu (Memorial House of Mother Teresa), sem er tileinkað lífi og starfi friðarverðlaunahafa Nóbels, en hún fæddist í Skopje. Síðan tekur við frjáls tími til að njóta borgarinnar á eigin vegum.

Ökum í um 45 mínútur að Matka-gljúfri, einni fegurstu náttúruperlu Norður-Makedóníu. Þar förum við í bátsferð um gljúfrið og siglum eftir kyrrlátu vatni Matka-stöðuvatnsins, umkringd háum klettaveggjum og grónum fjallshlíðum. Að bátsferð lokinni göngum við eftir fallegum göngustíg meðfram gljúfrinu til baka að upphafsstaðnum. Á leiðinni gefst tækifæri til að njóta þessa stórbrotna náttúrusvæðis frá öðru sjónarhorni.

Við stoppum síðan í hádegisverð á veitingastað í nágrenninu áður en við höldum ferðinni áfram til suðvesturs, í átt að Ohridvatni. Leiðin liggur um fallegt og fjöllótt landslag vesturhluta Norður-Makedóníu. Við komuna til Ohrid tékkum við inn á Hotel Unique 5* þar sem við gistum næstu 3 nætur.

8 km - Hækkun / lækkun 70 m
Kvöldverður

Ekið stutta leið að Sveti Stefan, þar sem við hefjum fallega gönguferð meðfram Ohridvatni í átt að miðbæ Ohrid. Á leiðinni njótum við stórkostlegs útsýnis yfir vatnið og umhverfið. Þegar komið er í gamla bæinn hittum við staðarleiðsögumann sem leiðir okkur um sögulegar götur Ohrid.

Við skoðum Samúelsvirkið (Samuel’s Fortress), heimsækjum nokkrar af sögufrægum kirkjum bæjarins og kynnumst ríkulegri menningararfleifð hans. Meðal þess sem við sjáum er hin fallega Jóhannesarkirkja í Kaneo (Church of St. John at Kaneo), sem stendur á kletti ofan við Ohridvatn og er eitt þekktasta kennileiti Norður-Makedóníu. Að skoðunarferð lokinni er síðdegið frjálst. 

8 km - Hækkun / lækkun 50 m
10 mínútur

Ekið 10 mínútur að Sveti Stefan, þar sem gönguferð dagsins hefst. Við göngum upp í Galičica-þjóðgarðinn, í hlíðunum ofan við Ohridvatn. Leiðin liggur um skóglendi, opin engi og lítil, hefðbundin þorp. Göngunni lýkur í þorpinu Velestovo, sem stendur í hlíðum Galičica-fjallsins. Þar snæðum við hádegisverð á notalegum veitingastað með stórkostlegu útsýni yfir Ohridvatn. 

Eftir hádegisverð er ekið til baka á hótelið. Síðdegið og kvöldið eru frjáls til að njóta gamla bæjarins í Ohrid á eigin vegum.

8.5 km - Hækkun 490 m/ lækkun 130 m
Hádegisverður

Tékkum út af hótelinu og ökum í átt að Albaníu. Við förum yfir landamærin við Qafë Thanë og höldum áfram til Tirana, hinnar líflegu höfuðborgar Albaníu.

Fyrsti viðkomustaðurinn verður Dajti-fjall, sem rís yfir borginni. Við förum með Dajti Ekspres-kláfnum upp fjallið og njótum stórkostlegs útsýnis yfir Tirana. Á fjallinu gefst tími til að njóta útsýnisins og snæða hádegisverð á veitingastað með fallegu útsýni yfir borgina og fjöllin í kring.

Eftir að hafa farið aftur niður með kláfnum höldum við á hótelið okkar í Tirana, Hotel Collosseo 4*, en þar munum við gista næstu 2 nætur. 

4 tímar
Hádegis- & kvöldverður

Um morguninn hittum við  staðarleiðsögumann sem leiðir okkur í gönguferð um Tirana. Við kynnumst helstu kennileitum albönsku höfuðborgarinnar og fræðumst um sögu hennar, menningu og þær miklu breytingar sem borgin hefur gengið í gegnum.

Við heimsækjum Skanderbeg-torgið, hjarta Tirana, og sjáum meðal annars Et’hem Bey-moskuna og hinn sögufræga klukkuturn. Á göngunni kynnumst við einnig öðrum áhugaverðum stöðum og fáum innsýn í þróun borgarinnar í gegnum tíðina.

Eftir skoðunarferðina tekur við frjáls tími þar sem hver og einn getur notið borgarinnar á eigin vegum.

Ekið til Krujë, sögufrægs bæjar sem stendur í fjallshlíðum norðan við höfuðborgina. Krujë er nátengd þjóðhetju Albana, Skanderbeg, sem leiddi andspyrnu gegn Ottómanaveldinu á 15. öld. Gengið um hæðirnar ofan við Krujë, þar sem fallegt útsýni er yfir nærliggjandi sveitir. Síðan tekur frjáls tími  þar sem hægt er að heimsækja Krujë-kastalann og Skanderbeg-safnið, þar sem saga þjóðhetjunnar og miðaldasaga Albaníu er rakin Einnig gefst tími til að skoða hinn heillandi gamla markað, sem er þekktur fyrir hefðbundið handverk, antíkverslanir og fjölbreyttan minjagripavarning.

Ökum síðan til Miðjarðarhafsstrandar Albaníu. Tékkum inn á Hotel Melia Durres 5* þar sem við gistum síðustu 2 næturnar í ferðinni.

3 km - Hækkun / lækkun 250 m
Kvöldverður

Í dag er frjáls dagur til að slaka á og njóta aðstöðunnar á strandhótelinu. Hægt er að nýta sundlaugarnar, heilsulindina og aðra aðstöðu hótelsins.

Fyrir þá sem vilja hreyfa sig og skoða nágrennið verður boðið upp á gönguferð meðfram ströndinni. Á leiðinni verður stoppað á kaffihúsi við sjávarsíðuna þar sem hægt verður að fá sér kaffibolla áður en gengið er aftur á hótelið.

Þeir sem enn eiga næga orku geta einnig tekið þátt í skemmtilegri hernaðarlegri líkamsræktaræfingu undir stjórn leiðsögumannsins Rok. Þar verður notast við eigin líkamsþyngd og áhersla lögð á hreyfingu og skemmtilega samveru.

8 km - Hækkun/ lækkun 10 m
Kvöldverður

Ekið til alþjóðaflugvallarins í Tirana, sem ber nafn Móður Teresu.

Flug LO 598 með Lot Polish Airlines kl. 13:30, lent í Warsaw kl. 15:40. Flug LO 499 frá Warsaw kl. 21:50. Lending í Keflavík laust eftir miðnætti.

Hvað er innifalið

  • Flug með LOT Airlines KEF WAW
  • Flug með LOT Airlines WAW SKI
  • Flug með LOT Airlines TIA WAW
  • Flug með LOT Airlines WAW KEF
  • Taska 23 kg & 8 kg handfarangur
  • Flugvallarskattar
  • Gisting með morgunverði í 5 nætur á 5 stjörnu hótelum
  • Gisting með morgunverði í 4 nætur á 4 stjörnu hótelum
  • 6 kvöldverðir
  • 2 hádegisverðir
  • Bátsferð í Matka gljúfrinu
  • Innlendir leiðsögumenn
  • Dajti Express kláfur
  • Aðgangseyrir í Samuel virkið í Ohrid
  • Aðgangseyrir í Agia Sofia kirkjuna í Ohrid
  • Allur akstur skv. dagskrá
  • Íslensk fararstjórn
  • Skattar & gjöld

Ekki innifalið

  • Ferðatryggingar
  • 3 kvöldverðir
  • 6 hádegisverðir
  • Þjórfé fyrir bílstjóra & innlenda leiðsögumenn
Fararstjóri

Snorri Guðmundsson

Snorri er Reykvíkingur, en hefur búið í Skotlandi síðan 2002. Hann stofnaði ferðaþjónustufyrirtækið Scot Walks Ltd (Skotgöngu) árið 2008 ásamt eiginkonu sinni, Ingu Geirsdóttur. Snorri er menntaður tölvunarfræðingur og starfar sem slíkur en er einnig framkvæmdastjóri Skotgöngu. Snorri hefur ávallt haft ástríðu fyrir ferðalögum og hefur einnig sérlegan áhuga á sögu & menningu, gönguferðum í óspilltri náttúru, knattspyrnu, tónlist, golfi og skosku maltviskíi.

Fararstjóri

Margrét Snorradóttir

Margrét, eða Magga eins og hún er alltaf kölluð, er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún fluttist til Skotlands árið 2010 og lauk prófi í ferðamálafræði frá Glasgow háskóla. Í dag sér hún um rekstur Skotgöngu ásamt foreldrum sínum, þeim Ingu og Snorra, og býr í Newquay í Cornwall ásamt sambýlismanni sínum.

Algengar spurningar

Í Durrës (Durres), á strönd Albaníu, má að jafnaði búast við hlýju og þægilegu haustveðri dagana 8.–10. október. Dagshiti er yfirleitt á bilinu 21–24°C og næturhiti um 13–16°C. Meðalhitinn er því um 18°C. Sjávarhitinn er enn nokkuð góður, eða um 21–22°C, þannig að enn ætti að vera hægt að fara í sjóinn. Nokkrar líkur eru á skúrum, en yfirleitt má búast við ágætu sólskini þótt veðrið geti verið breytilegt.

Þegar áfangastaðirnir eru bornir saman má sjá að hitastigið er nokkuð mismunandi. Í Skopje er dagshitinn yfirleitt um 20–23°C og næturhitinn 9–11°C. Í Ohrid er heldur svalara, en þar má búast við 18–21°C hita yfir daginn og 7–11°C á nóttunni. Í Tirana er dagshitinn yfirleitt um 21–23°C og næturhitinn 11–14°C. Í Durrës er hins vegar yfirleitt hlýjast á þessum árstíma, sérstaklega á kvöldin, en þar má búast við 21–24°C hita yfir daginn og 13–16°C á nóttunni.

Durrës er því yfirleitt hlýjasti áfangastaðurinn af þessum fjórum á þessum árstíma. Þar er sjávarhitinn einnig enn nægilega hár til að hægt sé að njóta þess að fara í sjóinn, þótt hann sé orðinn svalari en yfir sumarmánuðina.

Því miður er ekki hægt að vera 3 saman í herbergi. Þau sem ferðast 3 saman geta sent inn beiðni um að fá herbergi hlið við hlið.

Það er því miður ekki möguleiki að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun. Þeir sem vilja nota vildarpunkta geta valið að kaupa flug á eigin vegum.

Já það þarf ekki að sækja töskur á milli fluga.

Skotganga (Scot Walks Ltd) er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi, UK.

Ef einhver kemst ekki í þá ferð sem viðkomandi hefur bókað í, er ekki hægt að fá endurgreiðslu á innáborgun né færa innáborgun yfir á aðra ferð. Við mælum með því að fólk skoði forfallatryggingar sem tengjast kredikortum sínum eða skaffi sér sérstaka ferðatryggingu.

Lokagreiðsla á ferð er 10 vikum fyrir brottför. Þátttakendur munu fá tilkynningu þegar kemur að lokagreiðslu.