Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)

Lengd ferðar

7 nætur

Sætafjöldi

40

Flugfélag

Icelandair

Rútuferð

Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)

4. - 11. september 2025

Spennandi ferð þar sem við kynnumst lífi og skáldskap Agöthu Christie (1890- 1976) sem er mest seldi rithöfundar allra tíma. Við byrjum á heimaslóðum Agöthu í Torquay á Ensku Riveriunni, þar gistum við í 4 nætur á Grand Hotel. Einmitt á því hóteli gistu Agatha og Archibald Christie brúðkaupsnóttina sína, á aðfangadagskvöld (1914).

Síðari 3 næturnar er gist í Oxford sem er einstaklega sjarmerandi borg, þekktust fyrir Oxford háskólann. Þar gistum við í hjarta borgarinnar á The Store Oxford. Þaðan munum við m.a. heimsækja Wallingford, þar sem Agahta bjó í 42 ár og skrifaði flestar skáldsögur sínar og síðan er frjáls dagur í Oxford.


Herbergi

Verð fyrir einstakling í tvíbýli með flugi. Ekki er hægt að bóka nema vera með ferðafélaga.

Almennt verð £2,260.00
Almennt verð Sölu verð £2,260.00
Innáborgun: £300.00


Flug

Þú hefur valið að taka þátt í hópbókun. Innifalið í flugi er ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg. Vinsamlegast athugið að hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Ekki er hægt að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun.

Almennt verð £2,260.00
Almennt verð Sölu verð £2,260.00
Innáborgun: £300.00


Farþegi 1
Almennt verð £2,260.00
Almennt verð Sölu verð £2,260.00
Innáborgun: £300.00
Herbergi
Flug

How often?

Subscribe to get regular deliveries of this product

Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)
Ævi & hugarheimur Agatha Christie (4. sep)

Ferðaáætlun

Á slóðir drottningar glæpasagnanna Agöthu Christie

Flug FI450 til London Heathrow. Brottför 07:40, lending 11:55. Kristín Linda flýgur með hópnum út og Inga tekur á móti hópnum á London Heathrow. Ekið er á Grand Hotel Torquay þar sem gist er fyrstu 4 næturnar.

3 tímar & 15 mín
4 tímar

Um morguninn er samvera og fræðsla á hótelinu þar sem rætt verður um Agöthu Christie. Agatha skrifaði 66 skáldsögur, leikrit og 15 smásögur sem hafa selst í yfir tveimur milljörðum eintaka. Sölutölur sem aðeins Biblían og verk Shakespear hafa náð.

Síðan er boðið upp á sögugöngu um Torquay. Við munum m.a. heimsækja Princes Pier, þar sem Agatha stóð fyrir 100 árum með kærasta sínum, og sjá hvar hún hitti manninn sem átti eftir að vera innblástur fyrir Herclue Poirot og margt fleira.

Um morguninn er fræðsla á hótelinu þar sem rætt verður um verk Agöthu s.s. Myrkraverk á Styles-setri, Dauðinn á Níl, Tjaldið fellur og Músagildruna, svo eitthvað sé nefnt. Eins munum við skoða sögusvið, plott og áhugaverðar sögupersónur.

Eftir það verður ekið til Brixham sem er einstaklega fallegur fiskimannabær. Þar ætlum við að borða saman hádegisverð á vinsælum sjávarréttarstað og síðan er frjáls tími til að skoða sig um í bænum.

½ tími hvor leið
Hádegis- & kvöldverður

Í dag heimsækjum við sumarleyfisstað Agöthu, The Greenway House. Þetta er spennandi ferðarlag. Fyrst er ekið frá hóteli til Paignton, þar tökum við gufulestina til Kingswear og siglum síðan á River Dart yfir til Greenway.

Boðið er upp á skoðunarferð um húsið og síðan er frjáls tími til að skoða sig um og fara í hádegisverð. Á leiðinni heim verður líka gefinn frjáls tími í Kingswhere áður en farið er í gufulestina.

½ tími
½ tími hvor leið

Tékkað út af hóteli og ekið til Salisbury sem er frægust fyrir dómkirkjuna, Salisbury Cathedral. Í bænum er frjáls tími til að skoða sig um og fara í hádegisverð.

Eftir það er ekið til The Store Oxford, þar sem við gistum síðustu 3 nætur ferðarinnar. Áætlaður komutími til Oxford er kl. 16:30.

Tilvalið að skella sér í Hop-on Hopp-off strætó og kynna sér borgina. Við mælum við sérstaklega með heimsókn í The Bodleian Library.

Eins er hægt að fara á siglingu á Thames-ánni, fara í sögugöngu, kíkja í lystigarðinn The University of Oxford Botanic Garden og fara í afternoon tea svo eitthvað sé nefnt.

Endilega pælið í því áður en komið er á staðinn hvað ykkur langar mest að gera og upplifa.

Eitt besta geymda leyndarmál Agöthu Christie voru tengsl hennar við Wallingford. Þar keyptu hún og Max Mallowan, eiginmaður hennar, Winterbrook House og þar bjuggu þau frá 1934-1976.

Ekið er til Wallingford þar sem við heimsækjum Wallingford Museum og förum í sögugöngu. Aðdáendur Midsommer Murders munu kannast við Wallingford sem Causton, þar sem aðalpersónur þáttarins, rannsóknarlögreglumennirnir Barnaby og Trory unnu.

Síðan er gefinn frjáls tími í Wallingford og hægt að skoða sig um, kíkja í verslanir og fá sér hádegisverð. Á leiðinni heim verður ekið framhjá Winterbrook House og stoppað við gröf Agöthu Christie.

Rúta frá hóteli á London Heathrow. Flug FI451 kl. 13:05 og lent kl. 15:15.

1 & 1/2 tími
3 tímar & 15 mín

Hvað er innifalið

  • Áætlunarflug með Icelandair KEF-LHR
  • Áætlunarflug með Icelandair LHR-KEF
  • Ein taska hámark 23kg & 10kg handfarangur
  • Flugvallarskattar
  • Gisting í 7 nætur með morgunverði
  • 5 kvöldverðir
  • 2 hádegisverðir
  • Allur akstur skv. dagskrá
  • Söguganga um Torquay
  • Lestarmiðar til/frá Kingswear
  • Bátur til/frá Greenway House
  • Aðgangseyrir í Greenway House
  • Heimsókn í Wallingford Museum
  • Söguganga um Wallingford
  • Fundarherbergi & fræðsla
  • Íslensk fararstjórn
  • Skattar og lögboðin tryggingagjöld í UK

Ekki innifalið

  • Ferðatryggingar
  • 2 kvöldverðir
  • 4 hádegisverðir
  • Drykkir með mat
  • Þjórfé fyrir rútubílstjóra
Fararstjóri

Inga Geirsdóttir

Inga er frá Eskifirði, bjó í Reykjavík um árabil en flutti til Skotlands árið 2003. Þar hóf hún fljótlega að bjóða vinkonum sínum í göngur um skosku Hálöndin. Það vatt hratt upp á sig og í dag leiðir hún ásamt fjölskyldu sinni hópferðir vítt og breitt um Bretland, Írland, Austurríki, Slóveníu, Króatíu, Ítalíu og Spán. Inga er mikill húmoristi og þykir ekkert skemmtilegra en að vera með hópunum sínum.

Fararstjóri

Kristín Linda Jónsdóttir

Kristín Linda er sálfræðingur á eigin sálfræðistofu Huglind á Selfossi og í Reykjavík. Hún hefur haldið fjölda vinsælla námskeiða og fyrirlestra um hvernig fólk getur bætt líðan sína, lífsgæði, heilsu og hamingju.

Hún byggir á nýjustu sálfræðilegri þekkingu og námskeiðin hennar eru þekkt fyrir að vera bæði efnismikil og hagnýt og lífleg og skemmtileg. Hún er reyndur sálfræðingur, kemur úr Þingeyjarsýslu en býr nú á Selfossi, hún var áður kúabóndi og í 20 ár ritstjóri tímaritsins Húsfreyjunnar.

Algengar spurningar

Þó að við getum aldrei treyst á veðrið, er september talinn vera einn besti tími til að heimsækja Torquay og Oxford með meðalhita um 18°.

Við göngum ekki mikið og erum yfirleitt á mjög greiðfæru undirlagi en áreynslan er meiri af því að sitja í rútunni og mikilvægt að geta hreyft ökklana. Þá er gott að vera á lágum gönguskóm/íþróttaskóm sem lofta. Sterklegir gönguskór eru því óþarfi, frekar léttir og lágir skór, sem hrinda eitthvað frá sér bleytu.

Því miður er ekki hægt að vera 3 saman í herbergi. Þau sem ferðast 3 saman geta sent inn beiðni um að fá herbergi hlið við hlið.

Vegna BREXIT eru reikisamningar ekki lengur í gildi milli Íslands og Bretlands og nauðsynlegt að útvega sér Ferðapakka Vodafone, Símans eða samsvarandi þjónustu hjá viðeigandi símafyrirtækjum fyrir brottför ef nota á netið í símanum utan hótela. Það má gera með símtali eða í gegnum netspjall við símafyrirtæki sitt.

Skotganga (Scot Walks Ltd) er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi, UK.

Ef einhver kemst ekki í þá ferð sem viðkomandi hefur bókað í, er ekki hægt að fá endurgreiðslu á innáborgun né færa innáborgun yfir á aðra ferð. Við mælum með því að fólk skoði forfallatryggingar sem tengjast kredikortum sínum eða skaffi sér sérstaka ferðatryggingu.

Það er því miður ekki lengur möguleiki að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun með Icelandair. Þeir sem vilja nota vildarpunkta geta valið að kaupa sitt flug sjálfir á heimasíðu Icelandair.

Þátttaka í hópbókun krefst að minnsta kosti 10 farþega. Ef lámarksþáttaka næst ekki, gilda reglur og skilyrði hópsins ekki lengur.

Farangursheimild, ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg er innifalin.Hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Breyting verður að gerast áður en flugmiði er gefinn út.

Ef þátttakandi bókar ferðina með röngu nafni, getur Icelandair krafist nafnabreytingar gegn ákveðnu gjaldi.

Þar sem um hópbókun er að ræða þurfa allar breytingar og aðrar fyrirspurnir varðandi flug að fara í gegnum Skotgöngu

Hægt er að kaupa flugið út í hópbókun en ekki er hægt að kaupa flug fyrir heimferð eingöngu. Hægt er að tala við ferðaskrifstofuna (Skotgöngu) með breytingu á heimferð frá öðru landi í þeim tilfellum sem fólk er að ferðast annað eftir ferðina.

Lokagreiðsla á ferð er 10 vikum fyrir brottför. Þátttakendur munu fá tilkynningu þegar kemur að lokagreiðslu.