Hálönd Skotlands (23. jún)

Lengd ferðar

7 nætur

Erfiðleikastuðull

Miðlungs

Flugfélag

Icelandair

Gönguferð

Hálönd Skotlands (23. jún)

23. - 30. júní 2027

Hálönd Skotlands eru stórbrotið landsvæði sem er þekkt fyrir tignarleg fjöll, djúpa dali, víðáttumiklar heiðar, kyrrlát vötn, forna kastala og einstaka náttúrufegurð.

Í þessari ferð munum við koma víða við í Hálöndunum og ganga valda kafla á vinsælustu gönguleiðum Skotlands (West Highland Way og Great Glen Way). Einnig verður gengið í Glen Coe dalnum, Speyside og við Balmoral kastala. Við munum auk þess kynna okkur dramatíska sögu skosku hálandanna.


Herbergi

Verð fyrir einn í tvíbýli með flugi. ATH. ekki hægt að bóka nema vera með ferðafélaga.

Almennt verð £2,200.00
Almennt verð Sölu verð £2,200.00
Innáborgun: £300.00


Flug

Þú hefur valið að taka þátt í hópbókun. Innifalið í flugi er ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg. Vinsamlegast athugið að hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Ekki er hægt að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun.

Almennt verð £2,200.00
Almennt verð Sölu verð £2,200.00
Innáborgun: £300.00


Farþegi 1
Almennt verð £2,200.00
Almennt verð Sölu verð £2,200.00
Innáborgun: £300.00
Herbergi
Flug

How often?

Subscribe to get regular deliveries of this product

Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)
Hálönd Skotlands (23. jún)

Ferðaáætlun

Gengið um stórbrotið landslag skosku hálandanna

Flug FI432 kl. 10:10 til Glasgow. Lending 13:25.

Fararstjórar taka á móti hópnum á flugvellinum í Glasgow. Þaðan er ekið til Drymen, þar sem gist verður fyrstu nóttina.

Sameiginlegur kvöldverður á hóteli. 

2 tímar & 15 mín
1 tími

Ganga dagsins er hluti af West Highland Way. Gengið er frá Drymen til Balmaha. Leiðin liggur yfir Conic Hill, sem staðsett er á Highland Boundary Fault, flekaskilunum á milli láglanda og hálanda Skotlands. Þar er stórkostlegt útsýni yfir Loch Lomond, stærsta stöðuvatns Bretlandseyja.

Síðan er ekið til Fort William, höfuðstaðs útivistar í hálöndunum, en þar munum við gista næstu 2 nætur.

12 km - hækkun/ lækkun 350 m
Hádegisnesti

Ökum til Glencoe Village þar sem ganga dagsins hefst. Gengin verður hringleið í Glencoe, sem er einn frægasti og stórbrotnasti dalur skosku hálandanna. Á leiðinni er komið við á Clachan Inn og við heimsækjum einnig Glencoe Visitor Centre, þar sem hægt er að kynna sér blóðuga sögu staðarins.

Að göngu lokinni er ekið aftur til Fort William.

12 km - hækkun/ lækkun 230 m
Hádegisnesti & kvöldverður

Ekið til Fort Augustus, sem er lítill bær við suðurenda Loch Ness. Þar hefst ganga dagsins. Við munum ganga hluta af Great Glen Way, í hlíðunum meðfram Loch Ness til Invermoriston.

Ökum síðan til baka til Fort Augustus þar sem gist verður næstu nótt.

14,5 km - hækkun/ lækkun 500 m
Hádegisnesti

Að morgni er farið í siglingu á frægasta stöðuvatni heims, Loch Ness. Þar munum við leita að Nessie (Loch Ness skrýmslinu) og njóta fegurðar svæðisins.

Eftir siglinguna er ekið til Aviemore, sem er vinsæll ferðamannabær í hjarta Cairgorms-þjóðgarðsins. Bærinn er þekktur sem ein helsta miðstöð skíðaíþrótta og útivistar í Skotlandi. Þar munum við gista næstu 2 nætur.

Frjáls tími eftir hádegi til að skoða sig um í bænum. 

1 & ½ tími
Kvöldverður

Gengið frá hótelinu að Loch an Eilein í Spey dalnum. Þetta er eitt fallegasta og rómantískasta stöðuvatn skosku hálandanna. Vatnið er umkringt fornum furuskógum og er þekkt fyrir litla eyju sem hefur að geyma rústir miðaldakastala. Við göngum í kringum vatnið og til baka að hótelinu okkar.

17 km – hækkun/ lækkun 220 m
Hádegisnesti & kvöldverður

Ekið yfir í austur hálöndin til Balmoral kastala, sumarleyfisstaðar bresku konungsfjölskyldunnar. Þar verður gengin hringleið sem kallast Balmoral Cairns. Þetta er ein sérstæðasta og sögulegasta gönguleið hálandanna. Hún er á landareign Balmoral kastala. Á leiðinni má sjá fjölda minnisvarða sem tengjast Viktoríu drottningu og fjölskyldu hennar.

Eftir gönguna er Balmoral kastali skoðaður. Ökum síðan til Stirling, þar sem við gistum síðustu nóttina í ferðinni.

10 km – hækkun/ lækkun 306 m
Kvöldverður

Ekið frá hóteli upp á Glasgow flugvöll. Flug FI431 með Icelandair frá Glasgow kl. 14:20 og lent kl. 15:45.

1 tími
2 tímar & 25 mín

Hvað er innifalið

  • Áætlunarflug með Icelandair KEF-GLA
  • Áætunarflug með Icelandair GLA-KEF
  • Ein taska hámark 23kg 10kg handfarangur
  • Flugvallarskattar
  • Gisting í 7 nætur með morgunverði
  • Allur akstur samkvæmt dagskrá
  • Hádegisnesti á 4 göngudögum
  • 5 kvöldverðir
  • Aðgangseyrir í Balmoral kastala
  • Sigling á Loch Ness

Ekki innifalið

  • Ferðatryggingar
  • 2 kvöldverðir
  • 3 hádegisverðir
  • Drykkir með mat
  • Þjórfé fyrir rútubílstjóra
Fararstjóri

Snorri Guðmundsson

Snorri er Reykvíkingur, en hefur búið í Skotlandi síðan 2002. Hann stofnaði ferðaþjónustufyrirtækið Scot Walks Ltd (Skotgöngu) árið 2008 ásamt eiginkonu sinni, Ingu Geirsdóttur. Snorri er menntaður tölvunarfræðingur og starfar sem slíkur en er einnig framkvæmdastjóri Skotgöngu. Snorri hefur ávallt haft ástríðu fyrir ferðalögum og hefur einnig sérlegan áhuga á sögu & menningu, gönguferðum í óspilltri náttúru, knattspyrnu, tónlist, golfi og skosku maltviskíi.

Fararstjóri

Inga Geirsdóttir

Inga er frá Eskifirði, bjó í Reykjavík um árabil en flutti til Skotlands árið 2003. Þar hóf hún fljótlega að bjóða vinkonum sínum í göngur um skosku Hálöndin. Það vatt hratt upp á sig og í dag leiðir hún ásamt fjölskyldu sinni hópferðir vítt og breitt um Bretland, Írland, Austurríki, Slóveníu, Króatíu, Ítalíu og Spán. Inga er mikill húmoristi og þykir ekkert skemmtilegra en að vera með hópunum sínum.

Algengar spurningar

Gengið er að mestu á merktum göngustígum, skógarstígum og malarvegum, en sums staðar þarf að ganga smá kafla á malbiki og eins má búast við grýttu og ójöfnu undirlagi.

Það er ekki hægt að ganga hluta af dagleið en hægt að taka sér frídag hvenær sem er í ferðinni. 

Gönguskór – best er að vera í gönguskóm með góðum öklastuðning. Utanvegarhlaupaskór gætu einnig hentað þeim sem eru vanir að ganga í slíkum. Eins mælum við með að koma með íþróttaskó og/eða sandala til skiptanna.

Bakpoki – það nægir að koma með 25l bakpoka. Eina sem þarf að bera yfir daginn er vatn, sólarvörn, nesti og regnföt.

Göngustafir – eru ekki nausynlegir en fyrir þá sem eru vanir að ganga með stafi þá mælum við með að taka þá með.  Göngustafir dreifa álaginu betur um líkamann og geta dregið úr líkum á hnémeiðslum í göngunum.

Gist er á hótelum og minni gistihúsum í ferðinni. Á öllum gististöðum eru baðherbergin með sturtu/baði, sjónvarpi, hárblásara og te & kaffi aðstöðu. Þar sem gistirými er takmarkað þarf stundum að skipta hópnum upp á tvo eða fleiri gististaði.

DRYMEN (1 nótt) - Buchanan Arms Hotel***

FORT WILLIAMS (2 nætur) – 2 gististaðir
Alexandra Hotel***
Premier Inn Fort William***


FORT AUGUSTUS (1 nótt) – 3 gististaðir
Loch Ness Gate House***
Lock Chambers & Caledonian Canal Centre***
Witehouse B&B*** 


AVIEMORE (2 nætur) - MacDonald Aviemore Resort****

STIRLING (1 nótt) - Golden Lion Hotel***

Á flestum stöðum er frítt internet en athugið að í Hálöndunum getur netsamband verið slakt. Ekki er alltaf netsamband á herbergjum en yfirleitt í öllum lobbíum. 

Skotganga (Scot Walks Ltd) er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi, UK.

Ef einhver kemst ekki í þá ferð sem viðkomandi hefur bókað í, er ekki hægt að fá endurgreiðslu á innáborgun né færa innáborgun yfir á aðra ferð. Við mælum með því að fólk skoði forfallatryggingar sem tengjast kredikortum sínum eða skaffi sér sérstaka ferðatryggingu.

Það er því miður ekki lengur möguleiki að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun með Icelandair. Þeir sem vilja nota vildarpunkta geta valið að kaupa sitt flug sjálfir á heimasíðu Icelandair.

Þátttaka í hópbókun krefst að minnsta kosti 10 farþega. Ef lámarksþáttaka næst ekki, gilda reglur og skilyrði hópsins ekki lengur.

Farangursheimild, ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg er innifalin.

Hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Breyting verður að gerast áður en flugmiði er gefinn út.

Ef þátttakandi bókar ferðina með röngu nafni, getur Icelandair krafist nafnabreytingar gegn ákveðnu gjaldi.

Allar breytingar og aðrar fyrirspurnir varðandi flug þurfa að fara í gegnum Skotgöngu, þar sem um hópbókun er að ræða.

Hægt er að kaupa flugið út í hópbókun en ekki er hægt að kaupa flug fyrir heimferð eingöngu. Hægt er að tala við ferðaskrifstofuna (Skotgöngu) með breytingu á heimferð frá öðru landi í þeim tilfellum sem fólk er að ferðast annað eftir ferðina.

Lokagreiðsla á ferð er 10 vikum fyrir brottför. Þátttakendur munu fá tilkynningu þegar kemur að lokagreiðslu.