Dekurdagar í Sitges (21. maí)

Lengd ferðar

7 nætur

Sætafjöldi

30

Flugfélag

Icelandair

Kvennaferð

Dekurdagar í Sitges (21. maí)

21. - 28. maí 2027

Sitges er þekkt fyrir fallegar strendur, heillandi gamla bæinn og líflega göngugötu. Bærinn hefur notalegt og afslappað yfirbragð og er kjörinn staður til að upplifa spænska stemningu, góðan mat og sólríka daga við sjóinn.

Hér bíður okkar fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir þær sem vilja njóta lífsins og kynnast nýju fólki. Við leggjum áherslu á notalega samveru, hreyfingu, skemmtilegar upplifanir og góðan félagsskap.


Herbergi

Verð fyrir einstakling í tvíbýli með flugi. Ekki er hægt að bóka nema vera með ferðafélaga.

Almennt verð £2,460.00
Almennt verð Sölu verð £2,460.00
Innáborgun: £300.00


Flug

Þú hefur valið að taka þátt í hópbókun. Innifalið í flugi er ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg. Vinsamlegast athugið að hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Ekki er hægt að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun.

Almennt verð £2,460.00
Almennt verð Sölu verð £2,460.00
Innáborgun: £300.00


Farþegi 1
Almennt verð £2,460.00
Almennt verð Sölu verð £2,460.00
Innáborgun: £300.00
Herbergi
Flug

How often?

Subscribe to get regular deliveries of this product

Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)
Dekurdagar í Sitges (21. maí)

Ferðaáætlun

Sólríkir dagar og spænsk stemning í Sitges

Flug FI 992 með Icelandair kl. 08:25, lent í Barcelona kl. 14:45. Helga kemur með hópnum út og Inga tekur á móti hópnum í Barcelona. 

Ekið er í ca. 1/2 tíma til Hotel Meliá Sitges**** við Miðjarðarhafið, staðsett í hjarta Aiguadolç-smábátahafnarinnar.

Kynningarfundur á barnum kl. 18:00.

4 tímar & 20 mín
Kvöldverður

Dagurinn hefst á skemmtilegri sögugöngu um gamla bæinn í Sitges, þar sem við röltum um fallegar götur og kynnumst sögu og helstu kennileitum bæjarins.

Seinnipartinn verður boðið upp á sundleikfimi, þar sem hreyfing og gleði verða í fyrirrúmi. Að henni lokinni eigum við notalega samverustund og njótum þess að vera saman.

ca. 3 km
Kvöldverður

Dagurinn hefst á akstri um fallegt landslag Katalóníu þar sem við heimsækjum ólífubúgarð. Þar fáum við að kynnast ræktun ólífutrjáa og framleiðslu ólífuolíu. Boðið verður upp á að smakka afurðir frá búgarðinum og njóta notalegrar stundar í sveitinni.

Að heimsókn lokinni höldum við áfram til Montserrat, eins þekktasta og tilkomumesta staðar Katalóníu. Montserrat er stórbrotið fjalllendi sem er sérstaklega þekkt fyrir óvenjulegar klettamyndanir og hið sögufræga Benediktsklaustur Santa Maria de Montserrat. 

3 tímar
Kvöldverður

Í dag er frjáls dagur og kjörið að taka lífinu með ró og njóta þess sem Sitges hefur upp á að bjóða. Sólin, ströndin og Miðjarðarhafið kalla – tilvalið að skella sér í sjósund, sóla sig eða rölta um bæinn.

Engin dagskrá, bara afslöppun og notalegheit – hver og einn nýtur dagsins á sinn hátt.

Dagurinn hefst á strandgöngu, þar sem við göngum í fjöruborðinu í góðum félagsskap og njótum sjávarloftsins og fallegs umhverfis. Að göngu lokinni geta þær sem vilja skellt sér í hressandi sjósund.

Seinnipartinn verður boðið upp á sundleikfimi og notalega samverustund – góður endir á ljúfum degi. Um kvöldið göngum við síðan saman í bæinn og endum á veitingastað.

ca. 5 km
Kvöldverður

Í dag höldum við til Barcelona og njótum þess sem þessi líflega og fallega borg hefur upp á að bjóða. 

Tilvalið er að skella sér í sightseeing um borgina, heimsækja hina stórbrotnu Sagrada Família eftir Gaudí og rölta um heillandi götur gamla bæjarins.

Svo má að sjálfsögðu gefa sér tíma til að kíkja í verslanir, setjast á notalegt kaffihús og njóta stemningarinnar í þessari einstöku borg. 

2 tímar
Kvöldverður

Dagurinn hefst á léttum göngutúr um svæðið, þar sem við njótum umhverfisins og komum við á skemmtilegum markaði til að skoða mannlífið og það sem þar er í boði.

Seinnipartinn verður svo boðið upp á sundleikfimi og notalega samverustund – ljúfur dagur í góðum félagsskap. 

ca. 4 km
Kvöldverður

Ekið á Barcelona flugvöll. Flug FI 993 kl. 15:45 og lent kl. 18:20.

1/2 tími
4 tímar & 35 mín

Hvað er innifalið

  • Áætlunarflug með Icelandair KEF-BCN
  • Áætlunarflug með Icelandair BCN-KEF
  • Ein taska hámark 23kg 10kg handfarangur
  • Flugvallarskattar
  • Gisting með morgunverði í 7 nætur
  • 5 kvöldverðir á hóteli
  • 1 kvöldverður á veitingastað
  • Allur akstur skv. dagskrá
  • Sundleikfimi
  • Aðgangseyrir í ólífubúgarð
  • Aðgangseyrir í Montserrat kirkjuna
  • Íslensk fararstjórn
  • Skattar & tryggingagjöld í UK

Ekki innifalið

  • Ferðatryggingar
  • Hádegisverðir
  • 1 kvöldverður
  • Drykkir með mat
  • Þjórfé fyrir bílstjóra í skoðunarferðum
Fararstjóri

Inga Geirsdóttir

Inga er frá Eskifirði, bjó í Reykjavík um árabil en flutti til Skotlands árið 2003. Þar hóf hún fljótlega að bjóða vinkonum sínum í göngur um skosku Hálöndin. Það vatt hratt upp á sig og í dag leiðir hún ásamt fjölskyldu sinni hópferðir vítt og breitt um Bretland, Írland, Austurríki, Slóveníu, Króatíu, Ítalíu og Spán. Inga er mikill húmoristi og þykir ekkert skemmtilegra en að vera með hópunum sínum.

Fararstjóri

Helga Unnarsdóttir

Helga er Eskfirðingur en býr nú í Reykjavík. Hún er íþróttakennari að mennt og einnig leirkerasmiður sem hvort tveggja kemur að góðu gagni í ferðunum okkar.

Helga hefur verið með okkur í Skotgöngu frá árinu 2007, en þá kom hún með í hópferð sem „hali“ á göngu upp skosku Hálöndin. Henni þykir fátt betra en að vera í góðum hópi kvenna, að leika saman og hafa gaman.

Algengar spurningar

Þó að við getum aldrei treyst á veðrið, er maí talinn vera frábær tími til að heimsækja Sitges. Um daginn er almennt 20–24°C á þessum árstíma og 13–16°C á kvöldin.

Meliá Sitges er í rólegu og fallegu umhverfi við Aiguadolç-höfnina. Það tekur um 10–15 mínútur að ganga í miðbæ Sitges, þar sem finna má veitingastaði, bari og verslanir.

Herbergin á Meliá Sitges eru björt, rúmgóð og nútímaleg og öll herbergin eru með svölum/verönd.Herbergin eru loftkæld og með ókeypis Wi-Fi og sjónvarpi.

Hótelið býður upp á góða aðstöðu fyrir bæði afslöppun og frí. Þar er stór útisundlaug, fallegur garður og líkamsræktaraðstaða. Einnig eru veitingastaðir og bar á hótelinu.

Því miður er ekki hægt að vera 3 saman í herbergi. Þær sem ferðast 3 saman geta sent inn beiðni um að fá herbergi hlið við hlið.

Skotganga (Scot Walks Ltd) er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi, UK.

Ef einhver kemst ekki í þá ferð sem viðkomandi hefur bókað í, er ekki hægt að fá endurgreiðslu á innáborgun né færa innáborgun yfir á aðra ferð. Við mælum með því að fólk skoði forfallatryggingar sem tengjast kredikortum sínum eða skaffi sér sérstaka ferðatryggingu.

Það er því miður ekki lengur möguleiki að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun með Icelandair. Þeir sem vilja nota vildarpunkta geta valið að kaupa sitt flug sjálfir á heimasíðu Icelandair.

Þátttaka í hópbókun krefst að minnsta kosti 10 farþega. Ef lámarksþáttaka næst ekki, gilda reglur og skilyrði hópsins ekki lengur.

Farangursheimild, ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg er innifalin.Hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Breyting verður að gerast áður en flugmiði er gefinn út.

Ef þátttakandi bókar ferðina með röngu nafni, getur Icelandair krafist nafnabreytingar gegn ákveðnu gjaldi.

Þar sem um hópbókun er að ræða þurfa allar breytingar og aðrar fyrirspurnir varðandi flug að fara í gegnum Skotgöngu.

Hægt er að kaupa flugið út í hópbókun en ekki er hægt að kaupa flug fyrir heimferð eingöngu. Hægt er að tala við ferðaskrifstofuna (Skotgöngu) með breytingu á heimferð frá öðru landi í þeim tilfellum sem fólk er að ferðast annað eftir ferðina.

Lokagreiðsla á ferð er 10 vikum fyrir brottför. Þátttakendur munu fá tilkynningu þegar kemur að lokagreiðslu.