Haustævintýri í Alsace (2. okt)

Lengd ferðar

7 nætur

Erfiðleikastuðull

Auðveld

Flugfélag

Icelandair

Kvennaferð

Haustævintýri í Alsace (2. okt)

2. - 9. oktober 2027

Í hjarta Alsace bíður okkar ævintýri þar sem haustlitir, góð vín og frönsk lífsnautn leika aðalhlutverkið. Í þessari ferð gefum við okkur tíma til að njóta. Við röltum um heillandi þorp, kynnumst mat, vínum og hefðum Alsace og eigum góðar stundir saman. Riquewihr verður okkar heimili þessa daga – fallegur staður til að vakna á, leggja upp í ævintýri frá og koma heim til að kvöldi.


Herbergi

Verð fyrir einstakling í tvíbýli með flugi. Ekki er hægt að bóka nema vera með ferðafélaga.

Almennt verð £2,370.00
Almennt verð Sölu verð £2,370.00
Innáborgun: £300.00


Flug

Þú hefur valið að taka þátt í hópbókun. Innifalið í flugi er ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg. Vinsamlegast athugið að hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Ekki er hægt að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun.

Almennt verð £2,370.00
Almennt verð Sölu verð £2,370.00
Innáborgun: £300.00


Farþegi 1
Almennt verð £2,370.00
Almennt verð Sölu verð £2,370.00
Innáborgun: £300.00
Herbergi
Flug

How often?

Subscribe to get regular deliveries of this product

Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)
Haustævintýri í Alsace (2. okt)

Ferðaáætlun

Ljúfir dagar, litrík þorp og góðar stundir

Flug FI 568 með Icelandair kl. 07:20 og lent í Zürich kl. 13:05. Við höldum þaðan til Riquewihr, þar sem við komum okkur fyrir á Best Western Plus Hotel & Spa le Schoenenbourgh.. Frjáls tími eftir komu og um kvöldið hittumst við yfir kvöldverði á hótelinu, kynnumst og förum yfir það sem bíður okkar næstu daga. Ljúf byrjun á ferð þar sem góð upplifun og ánægjulegur félagsskapur fá að njóta sín.

3 tímar & 45 mín
2 & 1/2 tími

Við byrjum daginn á rólegri göngu um Riquewihr. Litrík bindingsverkshús, þröngar götur og falleg smáatriði mæta okkur við hvert fótmál og við leyfum okkur að njóta þess að vera komin á þennan heillandi stað. Að göngunni lokinni er frjáls tími fram eftir degi. 

Seinnipartinn eigum síðan notalega samverustund. Um kvöldið förum við saman út að borða og njótum fyrsta heila ferðadagsins yfir góðum mat og léttu spjalli.

Ekið frá hóteli í ca. 45 mínútur til Écomusée d’Alsace, sem er útisafn þar sem gömul hús, handverk og hefðir veita okkur innsýn í daglegt líf fyrri tíma. Við röltum um safnið, skoðum okkur um og kynnumst þeirri menningu sem hefur mótað þetta fallega hérað.

Að heimsókn lokinni höldum við aftur til Riquewihr og njótum frjálsrar stundar. Seinnipartinn hittumst við, berum saman upplifanir dagsins og eigum góða stund saman.

1 & ½ tími
Kvöldverður

Í dag er frjáls dagur. Nú gefst tækifæri til að fylgja eigin löngunum og njóta þess sem Riquewihr og nágrennið hafa upp á að bjóða.

Þær sem vilja hreyfa sig geta leigt hjól og farið um fallegar sveitir Alsace eða lagt upp í göngu um nágrennið. Aðrar kjósa ef til vill rólegan morgun, góðan kaffibolla og tíma til að sitja og horfa á mannlífið. Einnig er hægt að njóta spa-aðstöðu hótelsins eða kanna möguleika á nuddi og öðrum meðferðum. 

Í dag liggur leið okkar til Kaysersberg. Aksturinn þangað tekur ca. 20 mínútur. Sameiginleg ganga um þennan fallega bæ og við gefum okkur tíma til að njóta húsanna, gatnanna og þess sérstaka sjarma sem einkennir þorp Alsace. Að göngu lokinni er frjáls tími til að fá sér góðan hádegisverð, skoða litlar verslanir og rölta áfram á eigin hraða. Síðan er ekið aftur heim á hótel.

Seinnipartinn heimsækjum við vínbónda, þar kynnumst vínrækt svæðisins og smökkum hin þekktu hvítvín Alsace. Ljúf stund þar sem bragð, fróðleikur og góður félagsskapur koma saman.

Dagurinn hefst á 30 mínútna akstri til Musée de la Maison du Fromage. Þar kynnumst við ostagerð og hefðum svæðisins og fáum að smakka á gómsætum ostum.

Þaðan ökum við í ca. klukkutíma til Mulhouse, þar sem gefst frjáls tími til að rölta um og fá sér hádegisverð. Eftir hádegi heimsækjum við textílsafn borgarinnar og kynnumst sögu, mynstrum og handverki sem hafa sett svip sinn á svæðið.

Seinnipartinn tekur eigum notalega stund saman fyrir kvöldverð. Eftir mat förum við í kvöldgöngu og njótum þorpsins þegar hægist á mannlífinu.

Í dag heimsækjum við Colmar, eina af perlum Alsace. Þar bíða okkar litrík hús, falleg síki og götur sem bjóða upp á að villast svolítið – og finna eitthvað fallegt á leiðinni. Í hverfinu sem gjarnan er kallað „Litlu Feneyjar“ speglast húsin í vatninu og stemningin býður upp á hæga göngu og góða stund. Við gefum okkur frjálsan tíma til að njóta bæjarins á eigin hraða. Hægt er að setjast á kaffihús, kíkja í verslanir eða fara í siglingu um síkin og upplifa bæinn frá nýju sjónarhorni.

Ekið til Zurich flugvallar. Flug FI 569 kl. 14:00 og lent á Keflavíkurflugvelli kl. 16:00.

2 & 1/2 tími
4 tímar

Hvað er innifalið

  • Áætlunarflug Icelandair KEF-ZRH
  • Áætlunarflug Icelandair ZRH-KEF
  • Ein taska max 23 kg & 10 kg handfarangur
  • Flugvallarskattar
  • Gisting í 7 nætur með morgunverði
  • 6 kvöldverðir
  • Vínsmakk
  • Aðgangseyrir í ostasafn
  • Aðganseyrir í textílsafn
  • Aðgangseyrir í Eco Museum
  • Allur akstur skv. dagskrá
  • Íslensk fararstjórn
  • Skattar & lögboðin tryggingagjöld

Ekki innifalið

  • Ferðatryggingar
  • 1 kvöldverður
  • Hádegisverðir
  • Drykkir með mat
  • Þjórfé fyrir bílstjóra
Fararstjóri

Inga Geirsdóttir

Inga er frá Eskifirði, bjó í Reykjavík um árabil en flutti til Skotlands árið 2003. Þar hóf hún fljótlega að bjóða vinkonum sínum í göngur um skosku Hálöndin. Það vatt hratt upp á sig og í dag leiðir hún ásamt fjölskyldu sinni hópferðir vítt og breitt um Bretland, Írland, Austurríki, Slóveníu, Króatíu, Ítalíu og Spán. Inga er mikill húmoristi og þykir ekkert skemmtilegra en að vera með hópunum sínum.

Fararstjóri

Helga Unnarsdóttir

Helga er Eskfirðingur en býr nú í Reykjavík. Hún er íþróttakennari að mennt og einnig leirkerasmiður sem hvort tveggja kemur að góðu gagni í ferðunum okkar.

Helga hefur verið með okkur í Skotgöngu frá árinu 2007, en þá kom hún með í hópferð sem „hali“ á göngu upp skosku Hálöndin. Henni þykir fátt betra en að vera í góðum hópi kvenna, að leika saman og hafa gaman.

Algengar spurningar

Veðrið í Alsace í Frakklandi í byrjun október er yfirleitt milt og haustlegt, með þægilegum hita yfir daginn en svalari kvöldum og nóttum. Gott er að hafa létta peysu eða jakka og síðbuxur með sér. Einnig getur rignt öðru hverju og því ráðlegt að taka með léttan regnjakka eða regnhlíf.

Meðalhiti í október í Alsace er um 15–18°C yfir daginn og 7–9°C á nóttunni. 

Því miður er ekki hægt að vera 3 saman í herbergi. Þau sem ferðast 3 saman geta sent inn beiðni um að fá herbergi hlið við hlið.

Skotganga (Scot Walks Ltd) er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi, UK.

Ef einhver kemst ekki í þá ferð sem viðkomandi hefur bókað í, er ekki hægt að fá endurgreiðslu á innáborgun né færa innáborgun yfir á aðra ferð. Við mælum með því að fólk skoði forfallatryggingar sem tengjast kredikortum sínum eða skaffi sér sérstaka ferðatryggingu.

Þátttaka í hópbókun krefst að minnsta kosti 10 farþega. Ef lámarksþáttaka næst ekki, gilda reglur og skilyrði hópsins ekki lengur.

Farangursheimild, ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg er innifalin.Hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Breyting verður að gerast áður en flugmiði er gefinn út.

Ef þátttakandi bókar ferðina með röngu nafni, getur Icelandair krafist nafnabreytingar gegn ákveðnu gjaldi.

Þar sem um hópbókun er að ræða þurfa allar breytingar og aðrar fyrirspurnir varðandi flug að fara í gegnum Skotgöngu.

Það er því miður ekki lengur möguleiki að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun með Icelandair. Þeir sem vilja nota vildarpunkta geta valið að kaupa sitt flug sjálfir á heimasíðu Icelandair.

Hægt er að kaupa flugið út í hópbókun en ekki er hægt að kaupa flug fyrir heimferð eingöngu.

Lokagreiðsla á ferð er 10 vikum fyrir brottför. Þátttakendur munu fá tilkynningu þegar kemur að lokagreiðslu.