Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)

Lengd ferðar

7 nætur

Sætafjöldi

48

Flugfélag

Icelandair

Rútuferð

Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)

12. - 19. ágúst 2027

Einstök ferð um Vestur-Noreg þar sem við fetum í fótspor forfmæðra okkar og forfeðra sem héldu vestur um haf og námu land á Íslandi fyrir meira en 1100 árum. Talið er að stór hluti landnámsmanna Íslands hafi komið frá Vestlandinu og Rogalandi í Noregi. Við ferðumst um þessi sögufrægu héruð, heimsækjum merka staði sem tengjast víkingaöld og landnámi Íslands og kynnumst þeim slóðum sem forfeður okkar og formæður kvöddu þegar þau lögðu upp í óvissuferðina til Íslands.

Á leiðinni njótum við stórbrotinnar náttúru Vestur-Noregs, þar sem tignarleg fjöll, djúpir firðir, glæsilegir fossar og gróðursælir dalir mynda ógleymanlega umgjörð um ferðalagið.


Herbergi

Verð fyrir einstakling í tvíbýli með flugi. Ekki er hægt að bóka nema vera með ferðafélaga.

Almennt verð £2,780.00
Almennt verð Sölu verð £2,780.00
Innáborgun: £300.00


Flug

Þú hefur valið að taka þátt í hópbókun. Innifalið í flugi er ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg. Vinsamlegast athugið að hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Ekki er hægt að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun.

Almennt verð £2,780.00
Almennt verð Sölu verð £2,780.00
Innáborgun: £300.00


Farþegi 1
Almennt verð £2,780.00
Almennt verð Sölu verð £2,780.00
Innáborgun: £300.00
Herbergi
Flug

How often?

Subscribe to get regular deliveries of this product

Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)
Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi (12. ágú)

Ferðaáætlun

Í fótspor formæðra og -feðra í Noregi 

Flug FI334 með Icelandair kl. 10:10 og lent í Bergen kl. 14:30.  

Fararstjórar taka á móti hópnum á Bergen flugvelli. Ekið til miðborgar Bergen, en þar verður gist fyrstu nóttina á Radisson Blu Royal Hotel Bergen ****.

Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.

2 tímar & 20 mín
30 mínútur

Ekið í suðurátt til eyjarinnar Moster, sem er einn mikilvægasti staður í kristnisögu Noregs. Samkvæmt Heimskringlu Snorra Sturlusonar steig Ólafur Tryggvason Noregskonungur þar á land árið 995 og lét reisa kirkju. Hann beitti sér fyrir kristnitöku Noregs og hafði einnig mikil áhrif á kristnitöku Íslands árið 1000. Á Moster munum við skoða menningar- og fræðasetrið Moster Amfi. Í fylgd staðarleiðsögumanns munum við skoða gömlu kirkjuna í Moster, eina elstu steinkirkju Noregs, kynna okkur sögu kristnitöku í Noregi og einnig 10.000 ára sögu námuvinnslu svæðisins.

Frá Moster ökum við síðan til Haugesund, en þar munum við gista næstu 2 nætur ferðarinnar á Quality Hotel Maritim, Haugasund ****.

3 & ½ tími
Hádegis- & kvöldverður

Ekið stutta vegalengd til eyjarinnar Karmoy. Þar ætlum við að heimsækja sögusetrið á Ögvaldsnesi (Avaldsnes). Ögvaldsnes er sögufrægur staður og er elsta konungssetur Noregs. Staðurinn var mikilvæg valdamiðstöð í um 3.000 ár. Margir norskir konungar dvöldu á Ögvaldsnesi og Snorri Sturluson heimsótti staðinn á 13. öld. Þar er sögusafn og endurgerður víkingabær þar sem hægt er að kynnast lífi fólks á víkingaöld. 

Að heimsókn lokinni ökum við til baka til Haugasunds þar sem við snæðum hádegisverð á veitingastað í miðbænum. Síðan ökum við að Haraldshaugen sem er einn merkasti minnisvarði í Noregi.  Þar munum við skoða okkur um áður en við ökum til baka á hótelið.

1 tími
Hádegis- & kvöldverður

Að morgni er ekið í norðaustur frá Haugasundi og stoppað við Langfossen við Akrefjörd. Fossinn er 612 metra hár og þykir einn glæsilegasti foss landsins. Síðan er ekið áfram til Tyssedal, en þar verður stoppað til að snæða hádegisverð.

Næsti viðkomustaður er Voss Folkemuseum, áhugavert byggðasafn í bænum Voss. Safnið var stofnað árið 1917 og er staðsett á bænum Mølstertunet, þar sem varðveitt eru 16 gömul timburhús, sum þeirra frá 16. öld. Húsin standa enn á sínum upprunalega stað og gefa góða mynd af daglegu lífi norskra bænda fyrr á öldum. 

Ökum síðan til Stalheim, en þar munum við gista næstu nótt á Stalheim Hotel ****.

4 & 1/2 tími
Hádegis- & kvöldverður

Ekið til Borgund, en þar munum við skoða Borgund stafkirkjuna, sem er ein frægasta og best varðveitta stafkirkja Noregs. Hún var byggð úr timbri árið 1180 og er þekkt fyrir glæsilegt þak með mörgum burstum og útskornum drekahöfðum sem minna á víkingaöldina. Hún er ein af aðeins 28 stafkirkjum sem varðveist hafa í Noregi, en á miðöldum voru þær líklega yfir þúsund. Síðan er ekið í gegnum Kaupanger sem var mikilvægur verslunarstaður á víkingaöld á leið okkar að Norska jöklasafninu við Fjærlandsfjörð.  Þar munum við hafa frjálsan tíma til að skoða safnið og snæða hádegisverð. 

Lokaáfangastaður dagsins er Förde þar sem við munum gista næstu nótt á Förde Hotel ****.

4 tímar
Hádegis- & kvöldverður

Ekið suður á bóginn, um heimaslóðir landnámsmannsins Ingólfs Arnarsonar og áfram til Eyvindvíkur, þar sem Gulaþing var haldið til forna. Það var eitt elsta og mikilvægasta þing Noregs og á sér sögu allt til níundu aldar. Þar komu saman fulltrúar bænda til að setja lög, leysa deilumál og kveða upp dóma. Lög þingsins, Gulaþingslögin, eru meðal elstu varðveittu lagatextum Norðurlanda og höfðu áhrif á þróun norsks réttarkerfis. Gulaþing er einnig talið hafa haft áhrif á íslenska þinghefð, enda komu margir landnámsmenn Íslands frá Vestur-Noregi. Þar munum við snæða þjóðlegan hádegisverð og fá leiðsögn um svæðið í fylgd heimamanns.

Síðan er ekið til Bergen þar sem gist verður á Radisson Blu Royal Hotel Bergen **** síðustu 2 næturnar í ferðinni.

4 & 1/2 tími
Hádegis- & kvöldverður

Við byrjum daginn á að skoða Hákonarhöllina í Bergen í fylgd staðarleiðsögumanns. Höllin er eitt merkilegasta söguhús Noregs. Hún var byggð á árunum 1247-1261 að skipan Hákonar gamla Hákonarsonar Noregskonungs. 

Síðan tekur við frjáls tími til að skoða sig um í bænum. Þar er margt að sjá, t.d. bryggjuhúsin við höfnina, Bryggen safnið, Hanseatiske Museum (miðstöð Hansakaupmanna í Noregi) og listasöfnin í miðbænum. Einnig er kjörið að fara í Flöibanen, lest frá miðborginni upp á fjallið Flöyen, en þar er stórkostlegt útsýni yfir Bergen, höfnina, eyjarnar og fjöllin í kring.

Frjáls morgunn í Bergen. Laust eftir hádegi er ekið til Bergen flugvallar.

Flug FI335 kl. 15:20. Lending í Keflavík kl. 15:50

1/2 tími
2 tímar & 30 mín

Hvað er innifalið

  • Áætlunarflug með Icelandair KEF-BGO
  • Áætlunarflug með Icelandair BGO-KEF
  • Ein taska max 23 kg & 10kg handfarangur
  • Flugvallarskattar
  • Gisting í 7 nætur með morgunverði
  • Allur akstur samkv. dagskrá
  • 6 kvöldverðir
  • 5 hádegisverðir
  • Aðgangseyrir í Moster Amfi
  • Aðgangseyrir í Kaupanger Stafkirke
  • Aðgangseyrir í Avaldsnes
  • Aðgangseyrir í Norsk Bremuseum
  • Aðgangseyrir í Voss Folkemuseum
  • Aðgangseyrir í Hákonarhöll
  • Íslensk fararstjórn
  • Skattar & lögboðin tryggingagjöld

Ekki innifalið

  • Ferðatryggingar
  • 1 kvöldverður
  • 2 hádegisverðir
  • Drykkir með mat
  • Þjórfé fyrir rútubílstjóra
Fararstjóri

Snorri Guðmundsson

Snorri er Reykvíkingur, en hefur búið í Skotlandi síðan 2002. Hann stofnaði ferðaþjónustufyrirtækið Scot Walks Ltd (Skotgöngu) árið 2008 ásamt eiginkonu sinni, Ingu Geirsdóttur. Snorri er menntaður tölvunarfræðingur og starfar sem slíkur en er einnig framkvæmdastjóri Skotgöngu. Snorri hefur ávallt haft ástríðu fyrir ferðalögum og hefur einnig sérlegan áhuga á sögu & menningu, gönguferðum í óspilltri náttúru, knattspyrnu, tónlist, golfi og skosku maltviskíi.

Fararstjóri

Vilborg Davíðsdóttir

Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur og þjóðfræðingur hefur sérhæft sig í ritun sögulegra skáldsagna sem hlotið hafa lofsamlega dóma allt frá því að sú fyrsta, Korku saga, kom út fyrir 30 árum. Hennar ellefta bók kom út haustið 2023. Hún starfaði á fjölmiðlum í 15 ár en hefur frá aldamótum helgað sig ritstörfum og erindahaldi. Hún býr í Elliðaárdalnum, á þrjú börn og tvær ömmuskottur, aðra á jörðu en hina á himni.

Fararstjóri

Inga Geirsdóttir

Inga er frá Eskifirði, bjó í Reykjavík um árabil en flutti til Skotlands árið 2003. Þar hóf hún fljótlega að bjóða vinkonum sínum í göngur um skosku Hálöndin. Það vatt hratt upp á sig og í dag leiðir hún ásamt fjölskyldu sinni hópferðir vítt og breitt um Bretland, Írland, Austurríki, Slóveníu, Króatíu, Ítalíu og Spán. Inga er mikill húmoristi og þykir ekkert skemmtilegra en að vera með hópunum sínum.

Algengar spurningar

Yfirleitt má búast við mildu sumarveðri í Vestur-Noregi á þessum árstíma. Hitinn er oftast á bilinu 15–20°C yfir daginn en getur farið neðar, sérstaklega í grennd við firði og fjöll. Veðurfar er breytilegt og úrkoma getur verið nokkur, en einnig má búast við björtum og fallegum sumardögum. Gott er að hafa með sér létta yfirhöfn, regnfatnað og þægilega skó.

Því miður er ekki hægt að vera 3 saman í herbergi. Þau sem ferðast 3 saman geta sent inn beiðni um að fá herbergi hlið við hlið.

Skotganga (Scot Walks Ltd) er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi, UK.

Ef einhver kemst ekki í þá ferð sem viðkomandi hefur bókað í, er ekki hægt að fá endurgreiðslu á innáborgun né færa innáborgun yfir á aðra ferð. Við mælum með því að fólk skoði forfallatryggingar sem tengjast kredikortum sínum eða skaffi sér sérstaka ferðatryggingu.

Það er því miður ekki lengur möguleiki að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun með Icelandair. Þeir sem vilja nota vildarpunkta geta valið að kaupa sitt flug sjálfir á heimasíðu Icelandair.

Þátttaka í hópbókun krefst að minnsta kosti 10 farþega. Ef lámarksþáttaka næst ekki, gilda reglur og skilyrði hópsins ekki lengur.

Farangursheimild, ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg er innifalin.Hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Breyting verður að gerast áður en flugmiði er gefinn út.

Ef þátttakandi bókar ferðina með röngu nafni, getur Icelandair krafist nafnabreytingar gegn ákveðnu gjaldi.

Þar sem um hópbókun er að ræða þurfa allar breytingar og aðrar fyrirspurnir varðandi flug að fara í gegnum Skotgöngu.

Hægt er að kaupa flugið út í hópbókun en ekki er hægt að kaupa flug fyrir heimferð eingöngu. Hægt er að tala við ferðaskrifstofuna (Skotgöngu) með breytingu á heimferð frá öðru landi í þeim tilfellum sem fólk er að ferðast annað eftir ferðina.

Lokagreiðsla á ferð er 10 vikum fyrir brottför. Þátttakendur munu fá tilkynningu þegar kemur að lokagreiðslu.