Sæluvika við Lake Garda (4. sep)

Lengd ferðar

7 nætur

Sætafjöldi

30

Flugfélag

Icelandair

Kvennaferð

Sæluvika við Lake Garda (4. sep)

4. - 11. september 2027

Bardolino er heillandi bær við austurströnd Gardavatns, umkringdur grænum hæðum, vínekrum og ólífulundum. Hér ríkir notaleg ítölsk stemning og lífið snýst um fallega vatnsbakkann, litlu torgin, kaffihúsin og veitingastaðina.

Nú er komið að okkur að pakka niður sólgleraugunum, skilja hversdaginn eftir heima og njóta lífsins saman! Fram undan er kvennaferð með góðum mat, hlátri, spjalli og ítalskri stemningu í góðra kvenna hópi. 


Herbergi

Verð fyrir einstakling í tvíbýli með flugi. Ekki er hægt að bóka nema vera með ferðafélaga.

Almennt verð £2,480.00
Almennt verð Sölu verð £2,480.00
Innáborgun: £300.00


Flug

Þú hefur valið að taka þátt í hópbókun. Innifalið í flugi er ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg. Vinsamlegast athugið að hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Ekki er hægt að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun.

Almennt verð £2,480.00
Almennt verð Sölu verð £2,480.00
Innáborgun: £300.00


Farþegi 1
Almennt verð £2,480.00
Almennt verð Sölu verð £2,480.00
Innáborgun: £300.00
Herbergi
Flug

How often?

Subscribe to get regular deliveries of this product

Sæluvika við Lake Garda (4. sep)
Sæluvika við Lake Garda (4. sep)
Sæluvika við Lake Garda (4. sep)
Sæluvika við Lake Garda (4. sep)
Sæluvika við Lake Garda (4. sep)
Sæluvika við Lake Garda (4. sep)
Sæluvika við Lake Garda (4. sep)
Sæluvika við Lake Garda (4. sep)
Sæluvika við Lake Garda (4. sep)
Sæluvika við Lake Garda (4. sep)
Sæluvika við Lake Garda (4. sep)
Sæluvika við Lake Garda (4. sep)
Sæluvika við Lake Garda (4. sep)

Ferðaáætlun

Kvennaferð með góðum mat, hlátri og ítalskri stemningu

Flug FI 936 með Icelandair, kl. 09:10 og lent í Mílanó kl. 15:20. Helga verður með hópnum í fluginu og Inga tekur á móti hópnum við komuna. Þaðan ökum við á hótelið okkar, Hotel Caesius Termae & Spa Resort, þar sem við dveljum í fallegu umhverfi við Gardavatn. 

Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

4 tímar & 10 mín
2 tímar

Við byrjum morguninn á notalegri göngu meðfram vatninu inn til Bardolino. Gangan tekur um 30 mínútur.

Við kynnum okkur bæinn og njótum fegurðarinnar sem þar er að finna. Að því loknu gefst frjáls tími til að skoða sig um og setjast niður á einum af mörgum veitingastöðum bæjarins.

Síðan höldum við aftur á hótelið og eigum notalegan seinni part saman með sundleikfimi og samverustund.

3 km
Kvöldverður

Við eigum dásamlegan dag í vændum í Parco Sigurtà! Við byrjum á lestarferð um þennan víðáttumikla og fallega garð og spreytum okkur svo á að búa til ítalskt pasta.

Að því loknu njótum við ítalskrar máltíðar saman og skálum í víni frá Bardolino-héraðinu. Síðan gefst frjáls tími til að rölta um garðinn og njóta fegurðarinnar í rólegheitum.

Síðdegið er frjálst fram að kvöldmat.

1 tími
Hádegis- & kvöldverður

Í dag er engin dagskrá, engin klukka og ekkert stress. Dagurinn er algjörlega okkar! 

Nú er bara að njóta lífsins, sólarinnar og fallega umhverfisins við Gardavatn. Hvort sem okkur langar að liggja við sundlaugina, rölta niður að vatni, kíkja í búðir eða einfaldlega púkast og gera nákvæmlega ekki neitt, þá er þetta dagurinn til þess!

Í dag höldum við til hinnar fallegu Verona, einnar rómantískustu og sögufrægustu borgar Ítalíu. Ferðalagið tekur um 40 mín. Þar tekur á móti okkur innlendur fararstjóri sem leiðir okkur um borgina, sýnir okkur helstu perlur hennar og segir frá sögu, mannlífi og menningu.

Verona heillar með fallegum torgum, þröngum götum og glæsilegum sögulegum byggingum. Borgin er meðal annars þekkt fyrir hið forna Arena di Verona og auðvitað söguna um Rómeó og Júlíu, sem hefur gert Verona að borg ástarinnar í hugum margra.

Að gönguferðinni lokinni fáum við frjálsan tíma til að skoða okkur um og njóta borgarinnar.

1 & ½ tími
Kvöldverður

Við byrjum daginn á léttri göngu til nágrannabæjarins Lazise, um 3,5 km leið.

Lazise er fallegur bær á austurbakka Gardavatns. Gamli bærinn einkennist af miðaldamúrum, þröngum götum og heillandi höfn. Við vatnið má njóta fallegs útsýnis, rölta eftir göngustígnum og setjast niður á kaffihúsi eða veitingastað. Hér sameinast sögulegur sjarmi og afslappað andrúmsloft.

Síðan göngum við aftur á hótelið þar sem sundleikfimi og góð samvera taka við.

Í dag ætlum við að sigla frá Bardolino til Sirmione, einnar af perlum Gardavatns.

Þessi fallegi bær stendur á mjóum skaga sem teygir sig út í vatnið. Sirmione er þekktur fyrir tilkomumikinn miðaldakastala, þröngar götur og leifar fornrar rómverskrar villu. 

Á lokakvöldinu klæðumst við bleiku og förum saman út að borða á veitingastað.

1 tími hvor leið
Kvöldverður

Rúta frá hóteli kl. 10:30. Flug FI 937 kl. 16:30 og lent kl. 18:45.



2 tímar
4 tímar & 15 mín

Hvað er innifalið

  • Áætlunarflug með Icelandair KEF-MXP
  • Áætlunarflug með Icelandair MXP-KEF
  • Ein taska hámark 23kg 10kg handfarangur
  • Flugvallarskattar
  • Gisting með morgunverði í 7 nætur
  • 4 kvöldverðir á hóteli
  • 1 kvöldverður á veitingastað
  • 1 hádegisverður
  • Allur akstur skv. dagskrá
  • Sundleikfimi
  • Innlendur leiðsögumaður í Verona
  • Vínsmakk & matreiðslunámskeið
  • Sigling til/frá Sirmione
  • Íslensk fararstjórn
  • Skattar & tryggingagjöld í UK

Ekki innifalið

  • Ferðatryggingar
  • 5 hádegisverðir
  • 2 kvöldverðir
  • Drykkir með mat
  • Þjórfé fyrir bílstjóra í skoðunarferðum
Fararstjóri

Inga Geirsdóttir

Inga er frá Eskifirði, bjó í Reykjavík um árabil en flutti til Skotlands árið 2003. Þar hóf hún fljótlega að bjóða vinkonum sínum í göngur um skosku Hálöndin. Það vatt hratt upp á sig og í dag leiðir hún ásamt fjölskyldu sinni hópferðir vítt og breitt um Bretland, Írland, Austurríki, Slóveníu, Króatíu, Ítalíu og Spán. Inga er mikill húmoristi og þykir ekkert skemmtilegra en að vera með hópunum sínum.

Fararstjóri

Helga Unnarsdóttir

Helga er Eskfirðingur en býr nú í Reykjavík. Hún er íþróttakennari að mennt og einnig leirkerasmiður sem hvort tveggja kemur að góðu gagni í ferðunum okkar.

Helga hefur verið með okkur í Skotgöngu frá árinu 2007, en þá kom hún með í hópferð sem „hali“ á göngu upp skosku Hálöndin. Henni þykir fátt betra en að vera í góðum hópi kvenna, að leika saman og hafa gaman.

Algengar spurningar

Hotel Caesius Thermae & SPA Resort er 4 sjörnu hótel við Gardavatn á Ítalíu, umkringt fallegum garði og í 5 mínútna göngufæri frá vatninu. 

Hótelið býður upp á fallegan sundlaugargarð með góðri sólbaðsaðstöðu og sundlaugarbar. Á hótelinu má einnig finna heilsulind, líkamsræktarstöð, veitingastað og bar.

Herbergin eru rúmgóð, með ísskáp, sjónvarpi, skrifborði og fataskáp. Öll herbergin eru með svalir og sér baðherbergi með sturtu og hárblásara. Baðsloppar og strandhandklæði eru inni á hverju herbergi. 

Ókeypis WiFi og reglulega er skemmtidagskrá á hótelbarnum á kvöldin.

Í Bardolino við Gardavatn á Ítalíu má yfirleitt búast við mildu og þægilegu veðri. Hiti er oft um 24–28°C yfir daginn og 15–18°C á kvöldin.

Því miður er ekki hægt að vera 3 saman í herbergi. Þær sem ferðast 3 saman geta sent inn beiðni um að fá herbergi hlið við hlið.

Skotganga (Scot Walks Ltd) er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi, UK.

Ef einhver kemst ekki í þá ferð sem viðkomandi hefur bókað í, er ekki hægt að fá endurgreiðslu á innáborgun né færa innáborgun yfir á aðra ferð. Við mælum með því að fólk skoði forfallatryggingar sem tengjast kredikortum sínum eða skaffi sér sérstaka ferðatryggingu.

Það er því miður ekki lengur möguleiki að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun með Icelandair. Þeir sem vilja nota vildarpunkta geta valið að kaupa sitt flug sjálfir á heimasíðu Icelandair.

Þátttaka í hópbókun krefst að minnsta kosti 10 farþega. Ef lámarksþáttaka næst ekki, gilda reglur og skilyrði hópsins ekki lengur.

Farangursheimild, ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg er innifalin.Hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Breyting verður að gerast áður en flugmiði er gefinn út.

Ef þátttakandi bókar ferðina með röngu nafni, getur Icelandair krafist nafnabreytingar gegn ákveðnu gjaldi.

Þar sem um hópbókun er að ræða þurfa allar breytingar og aðrar fyrirspurnir varðandi flug að fara í gegnum Skotgöngu.

Hægt er að kaupa flugið út í hópbókun en ekki er hægt að kaupa flug fyrir heimferð eingöngu. Hægt er að tala við ferðaskrifstofuna (Skotgöngu) með breytingu á heimferð frá öðru landi í þeim tilfellum sem fólk er að ferðast annað eftir ferðina.

Lokagreiðsla á ferð er 10 vikum fyrir brottför. Þátttakendur munu fá tilkynningu þegar kemur að lokagreiðslu.