SV-England (1. jún)

Lengd ferðar

7 nætur

Sætafjöldi

40 sæti

Flugfélag

Icelandair

Rútuferð

SV-England (1. jún)

1. - 8. júní 2024
Ævintýraleg ferð til Suðvestur- Englands þar sem gist er 2 nætur í Bath, 2 nætur í St Ives, 2 nætur í Torquay á Ensku Riverunni og 1 nótt í Salisbury.

Farið verður á slóðir Doc Martin og Poldark, heimsækjum The Roman Baths, St Michaels Mount, Land´s End og hið einstaka útileikhús Minack Theatre svo eitthvað sé nefnt.

Þá verður einnig frjáls tími til að skoða sig um, auk þess sem við heimsækjum einhverjar merkustu steinaldarminjar sem finnast á Bretlandseyjum, Stonehenge.

Skrá á póstlista


Takk fyrir skráninguna!

Villa kom upp - vinsamlegast reyndu aftur

SV-England (1. jún)
SV-England (1. jún)
SV-England (1. jún)
SV-England (1. jún)
SV-England (1. jún)
SV-England (1. jún)
SV-England (1. jún)
SV-England (1. jún)
SV-England (1. jún)
SV-England (1. jún)
SV-England (1. jún)
SV-England (1. jún)
SV-England (1. jún)

Ferðaáætlun

Menningarferð til Suðvestur-Englands

Flug FI450 með Icelandair frá Keflavík kl. 07:40 og lent kl. 11:45. Fararstjórar taka á móti hópnum á flugvelli og ekið til Bath þar sem gist verður fyrstu 2 næturnar á Hotel Indigo.

Bath er af mörgum talin ein fallegasta borg Bretlands. Hún er stærsta borg Somerset sýslu með um 90.000 íbúa. Borgin er þekkt fyrir rómversku baðhúsin og Georgískan arkitektúr.

Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

3 tímar & 15 mín
Kvöldverður

Fyrir hádegi heimsækjum við The Roman Baths sem er einn af vinsælustu viðkomustöðum á svæðinu. Síðan tekur við frjáls tími til að skoða sig um og versla í borginni.

Skammt frá baðhúsunum er klaustrið Bath Abbey sem er tilvalið að kíkja í á frjálsa tímanum, en þar hefur verið trúarmiðstöð í 1300 ár.

Í Bath er eins að finna Jane Austen Centre, en rithöfundurinn heimsfrægi bjó í Bath í upphafi 19. aldar og var hún fræg fyrir sögur sínar um mið- og yfirstéttarkonur. Frægasta verk hennar er Hroki og hleypidómur (Pride and Prejudice) sem kom fyrst út árið 1813.

Í Bath er mikið úrval af veitingastöðum. Einnig er hægt er að borða á hótelbarnum eða veitingastað hótelsins fyrir þá sem vilja.

Ekið til St Ives þar sem gist verður næstu 2 nætur á Tregenna Castle.

St Ives sem er afar fallegur og vinsæll sjávarbær á vesturströnd Cornwall. Margir listamenn hafa alið manninn í St Ives, og þar er t.d. að finna útibú frá hinu heimsfræga Tate safni, Tate St Ives.

Við komu á hótel verður boðið upp á göngu niður í miðbæ fyrir þá sem vilja. Aðrir geta tekið leigubíl frá hóteli eða hafa það huggulegt á hótelinu.

Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

4 tímar
Kvöldverður

Rúta frá hóteli til Marizion en þar ætlum við að taka bát yfir til eyjarinnar St Michael´s Mount. Þar verður frjáls tími til að skoða sig um eyjuna og heimsækja kastalann þar.

Eftir það keyrum við til Lands' End sem er eitt þekktasta kennileiti Bretlands. Þar getur fólk farið í hádegisverð og skoðað sig um. Kjörið að láta taka mynd af sér við hið fræga Lands' End skilti. Á góðum degi er útsýni yfir til Scilly eyja, sem eru staðsett 45 km vestur af stöndinni.

Síðan ökum við til Minack Theatre og þar munum við skoða hið einstaka útileikhús sem er byggt í stórbrotnu landslagi á klettóttri ströndinni.

Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

Kvöldverður

Ekið til Port Issac sem er heillandi fiskiþorp á norðurstönd Cornwall, frægt fyrir að vera sögusvið Doc Martin sjónvarpsþáttanna sem hafa notið mikilla vinsælda víða um heim.

Þar verður boðið uppá gönguferð um bæinn í fylgd heimamanna, sem munu fræða okkur um sögu bæjarins og allt sem þið viljið vita um Doc Martin þættina. Að loknum göngutúrnum verður boðið upp á hádegisverð í bænum.

Eftir það er ekið til Torquay sem er vinsæll ferðamannastaður á Ensku Riverunni í Devon og þar er gist á Grand Hotel næstu 2 nætur.

Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

3 tímar
Hádegis- & kvöldverður

Ekið til Brixham, sem er afar fallegur strandbær. Þar verður frjáls tími til að skoða sig um. Að því loknu verður boðið upp á hádegisverð á vinsælum sjávarréttarstað.

Ekið aftur heim á hótel og eftir það er frjáls eftirmiðdagur og kvöld. Hægt er að borða á hótelbarnum eða veitingastað hótelsins fyrir þá sem vilja.

1 tími (30 mín hvor leið)
Hádegisverður

Ekið til Stonehenge og steinahringurinn skoðaður. Eftir það liggur leiðin til Salisbury þar sem gist er á The Red Lion Hotel. Frjáls eftirmiðdagur í Salisbury.

Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

Kvöldverður

Ekið á London Heathrow. Flug FI451 með Icelandair til Keflavíkur kl. 13:05 og lent kl. 15:15.

2 tímar
3 tímar & 15 mín

Hvað er innifalið

  • Áætlunarflug með Icelandair KEF-LHR
  • Áætunarflug með Icelandair LHR-KEF
  • Ein taska hámark 23kg 10kg handfarangur
  • Flugvallarskattar
  • Gisting með morgunverði í 7 nætur
  • 5 kvöldverðir
  • 2 hádegisverðir
  • Allur akstur skv. dagskrá
  • Gönguferð með heimamanni í Port Isaac
  • Aðgangseyrir í Roman Baths
  • Aðgangseyrir í St. Michael´s Mount kastala
  • Aðganseyrir í Minack Theatre
  • Aðganseyrir í Stonehenge
  • Íslensk fararstjórn
  • Skattar og lögboðin tryggingagjöld í UK

Ekki innifalið

  • 2 kvöldverðir
  • 5 hádegisverðir
  • Ferðatryggingar
  • Þjórfé fyrir rútubílstjóra
Fararstjóri

Snorri Guðmundsson

Snorri er Reykvíkingur, en hefur búið í Skotlandi síðan 2002. Hann stofnaði ferðaþjónustufyrirtækið Scot Walks Ltd (Skotgöngu) árið 2008 ásamt eiginkonu sinni, Ingu Geirsdóttur. Snorri er menntaður tölvunarfræðingur og starfar sem slíkur, en er einnig framkvæmdastjóri Skotgöngu. Snorri hefur ávallt haft ástríðu fyrir ferðalögum og hefur einnig sérlegan áhuga á sögu & menningu, gönguferðum í óspilltri náttúru, knattspyrnu, tónlist, golfi og skosku maltviskíi.

Fararstjóri

Margrét Snorradóttir

Margrét, eða Magga eins og hún er alltaf kölluð, er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún fluttist til Skotlands árið 2010 og lauk prófi í ferðamálafræði frá Glasgow háskóla. Í dag sér hún um rekstur Skotgöngu ásamt foreldrum sínum, þeim Ingu og Snorra.

Ferðaþjónusta á hug hennar og hjarta. Þau Gary Arthurs, eiginmaður hennar, reka jafnframt fyrirtækið Caledonian Chauffeur Travel sem býður hágæða sérferðir um Skotland fyrir 2-7 farþega.

Algengar spurningar

Þó að við getum aldrei treyst á veðrið, er almennt hlýtt í júní á þessu svæði (16-21°) og að meðaltali 7 sólarstundir á dag.

Við göngum ekki mikið og erum yfirleitt á mjög greiðfæru undirlagi en áreynslan er meiri af því að sitja í rútunni og mikilvægt að geta hreyft ökklana. Þá er gott að vera á lágum gönguskóm/íþróttaskóm sem lofta. Sterklegir gönguskór eru því óþarfi, frekar léttir og lágir skór, sem hrinda eitthvað frá sér bleytu.

Því miður er ekki hægt að fá þriggjamanna herbergi í þessari ferð en hægt að biðja um herbergi hlið við hlið.

Skotganga (Scot Walks Ltd) er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi, UK.

Ef einhver kemst ekki í þá ferð sem viðkomandi hefur bókað í, er ekki hægt að fá endurgreiðslu á innáborgun né færa innáborgun yfir á aðra ferð. Við mælum með því að fólk skoði forfallatryggingar sem tengjast kredikortum sínum eða skaffi sér sérstaka ferðatryggingu.

Það er því miður ekki lengur möguleiki að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun með Icelandair. Þeir sem vilja nota vildarpunkta geta valið að kaupa sitt flug sjálfir á heimasíðu Icelandair.

Þátttaka í hópbókun krefst að minnsta kosti 10 farþega. Ef lámarksþáttaka næst ekki, gilda reglur og skilyrði hópsins ekki lengur.

Farangursheimild, ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg er innifalin.

Hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Breyting verður að gerast áður en flugmiði er gefinn út.

Ef þátttakandi bókar ferðina með röngu nafni, getur Icelandair krafist nafnabreytingar gegn ákveðnu gjaldi.

Allar breytingar og aðrar fyrirspurnir varðandi flug þurfa að fara í gegnum Skotgöngu, þar sem um hópbókun er að ræða.

Hægt er að kaupa flugið út í hópbókun en ekki er hægt að kaupa flug fyrir heimferð eingöngu. Hægt er að tala við ferðaskrifstofuna (Skotgöngu) með breytingu á heimferð frá öðru landi í þeim tilfellum sem fólk er að ferðast annað eftir ferðina.

Lokagreiðsla á ferð er 10 vikum fyrir brottför. Þátttakendur munu fá tilkynningu þegar kemur að lokagreiðslu.