Blogg

Sérferðir Skotgöngu

Frá Inga Geirsdottir
26. febrúar 2026

Við hjá Skotgöngu sérhæfum okkur í skipulögðum sérferðum fyrir hópa sem vilja upplifa Evrópu á einstakan og persónulegan hátt.

Hvort sem um ræðir vinahópa, félagasamtök, kóra, vinnustaði eða aðra sérhópa, þá sérsníðum við ferðina að ykkar þörfum, áherslum og draumum. Engir tveir hópar eru eins – og þess vegna eru ferðirnar okkar það ekki heldur.

Á hverju ári skipuleggjum við yfir 30 fjölbreyttar ferðir víðsvegar um Evrópu. Með áralangri reynslu og traustum tengslum erlendis tryggjum við faglega skipulagningu, persónulega þjónustu og vandaða dagskrá þar sem menning, náttúra, saga og skemmtileg samvera fléttast saman í ógleymanlega upplifun.

Dæmi um vinsælar sérferðir:

  • Orkneyjar - Skotland
  • Hálandaferð - Skotland
  • Suðureyjar (Skotland) - Iona, Mull, Skye, Lewis og Harris
  • Normandí - Frakkland
  • Slóvenía - Bled og Lubljana 
  • Alsace - Frakkland
  • Suðvestur -England - Cornwall
  • Í fótspor Jane Austen - England
  • Vatnahéröð Englands og York

Einnig bjóðum við upp á:

  • Dekurferðir á Spáni
  • Gönguferðir víða um Evrópu
  • Borgarferðir til Glasgow og Edinborgar

Leyfið okkur að skapa næsta ævintýri fyrir ykkar hóp. Hvort sem þið viljið menningu, göngur, sögu, slökun eða blöndu af þessu öllu – þá tökum við ykkur alla leið frá hugmynd að ógleymanlegri upplifun.

Hafið samband og tryggið ykkur dagsetningu fyrir 2027.