Viðtal

Viðtal og ferðafundur

Frá Inga Geirsdóttir
12. nóvember 2026

Skotgönguvinir hittust á Íslandi í gær og jafnframt fóru Inga og Snorri í viðtal í Mannlega þættinum. 

Það var gaman að sjá hversu margir lögðu leið sína á ferðafundinn okkar. Þar gafst tækifæri til að rifja upp góðar stundir með gömlum ferðafélögum og kynnast nýju fólki sem langar að taka þátt í ævintýrunum fram undan

Í tilefni heimsóknarinnar til Íslands voru Inga Geirsdóttir og Snorri Guðmundsson, einnig í viðtali þar sem þau sögðu frá fyrirtækinu, lífinu í Skotlandi og fjölbreyttu ferðunum sem Skotganga býður upp á.

Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna á ferðafundinn og við hlökkum til að hitta ykkur á næsta ári.

Hér má hlusta á viðtalið: Mannlegi þátturinn - Spilari RÚV