Ferðaáætlun
Náttúruperlur og töfrandi garðar SV-Englands
Flug FI450 kl. 07:40 með Icelandair til London Heathrow. Lent kl. 11:45 og við tekur akstur til St Ives, Cornwall þar sem gist verður á Tregenna Castle Hotel fyrstu 3 næturnar.
St Ives er afar fallegur sjávarbær á vesturstönd Cornwall. Margir listamenn hafa alið manninn í St Ives, og þar er t.d. að finna útibú frá hinu heimsfræga Tate safni, Tate St Ives.
Ekið í ca. klukkutíma til Trebah Garden sem er paradís fyrir garðaáhugafólk. Þar kennir ýmissa grasa og fyrir utan fallegan gróður þá er að finna hvíta sandströnd, mikla sögu, safn og veitingahús.
Við byrjum á því að fá leiðsögn um garðinn og eftir það er frjáls tími til að skoða sig um og fá sér hádegisverð. Eftir það er ekið aftur til St Ives og þar er frjáls tími fram að kvöldverði.
Í dag heimsækjum við Lost Garden of Heligan. Það tekur um 90 mínútur að keyra þangað. Týndu garðarnir í Heligan voru einu sinni gleymdir og huldir undir þykkum runnum í meira en sjötíu ár. Í dag hafa þeir verið endurreistir í allri sinni dýrð. Hver hluti garðsins hefur sína sérstöðu og sjarma – allt frá frumskógi til blómaengja.
Boðið er upp á leiðsögn um garðinn og eftir það er frjáls tími til að skoða sig um og fara í hádegisverð. Á leiðinni til heim verður komið við í Helston, og þar gefst tækifæri á því að heimsækja Museum of Cornish Life, sem tekur gesti með í ferðalag í gegnum sögu og menningu svæðisins.
Ekið til Eden Project sem er einn þekktasti staður Englands, þar sem náttúruna og vísindi mætast á stórkostlegan hátt. Hér má ganga
inn í risavaxin glerhvelfingahús sem hýsa regnskóga og miðjarðarhafsplöntur frá öllum heimshornum.
Staðurinn sýnir hvernig lífið á jörðinni tengist og hvernig við getum lifað í sátt við náttúruna. Við byrjum á leiðsögn um garðinn og eftir það er frjáls tími til að skoða sig um og fá sér hádegisverð.
Síðan er ekið til Exeter þar sem gist verður í eina nótt á Holiday Inn Express sem er í miðborginni. Frjálst kvöld í Exeter.
Ekið til Topsham þar sem er frjáls tími til að skoða sig um og fara í hádegisverð. Í þorpinu er að finna Topsham Quay Antiques Centre og fleiri skemmtilegar sérverslanir. Kl. 14:00 er ekið til Bath, en þar verður gist síðustu 2 næturnar á APEX City of Bath.
Bath er þekkt fyrir rómversku baðhúsin og Georgískan arkitektúr. Jane Austen rithöfundurinn heimsfrægi bjó í Bath í upphafi 19. aldar. Hún var fræg fyrir sögur sínar um mið- og yfirstéttarkonur. Frægasta verk hennar er Hroki og hleypidómar (Pride and Prejusdice).
Tilvalið að heimsækja Roman Baths sem er vinsælasti ferðamannastaðurinn í borginni.
Eins er gaman að heimsækja Bath Abbey sem er skammt frá baðhúsunum. Síðan er kjörið að fara að elsta húsi í Bath (1482) en þar er veitingastaðurinn og safnið Sallys Lunns, þar er hægt að fá sér hina frægu Bath bollu – Sally Lunn Bun.
Í Bath er einnig að finna Jane Austen Centre, sem er safn sem er einnig gaman að skoða.
Kl. 11:00 er ekið í ca. 2 og ½ tíma til Royal Botanic Kew.
Garðurinn er stærsti og eini garðurinn í Bretlandi sem er á heimsminjaskrá UNESCO en hann var opnaður 1840. Kew Garden státar sig af um 30 þúsund tegundum plantna og hýsir stærsta og fjölbreyttasta grasa- og sveppafræðisöfn í heiminum. Frjáls tími í garðinum til 17:30 en þá er ekið til London Heathrow.
Flug FI455 kl. 21:25 og lent í Keflavík kl. 23:35.
Hvað er innifalið
- Áætlunarflug Icelandair KEF-LHR
- Áætlunarflug Icelandair LHR–KEF
- Ein taska max 23 kg & 10 kg handfarangur
- Flugvallarskattar
- Gistingar í 6 nætur með morgunverði
- 4 kvöldverðir
- Allur akstur samkvæmt dagskrá
- Aðgangseyrir í Trebah Garden
- Leiðsögn um Trebah Garden
- Aðgangseyrir í Lost Gardens of Heligan
- Leiðsögn um Lost Gardens of Heligan
- Aðgangseyrir í Eden Project
- Aðgangseyrir í Roayl Botanic Gardes, Kew
- Íslensk fararstjórn
- Skattar & lögboðin tryggingagjöld í UK
Ekki innifalið
- Ferðatryggingar
- 2 kvöldverðir
- Hádegisverðir
- Drykkir með mat
- Þjórfé fyrir rútubílstjóra
Inga Geirsdóttir
Ómar Andersen Valdimarsson
Algengar spurningar
Skotganga (Scot Walks Ltd) er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi, UK.
Ef einhver kemst ekki í þá ferð sem viðkomandi hefur bókað í, er ekki hægt að fá endurgreiðslu á innáborgun né færa innáborgun yfir á aðra ferð. Við mælum með því að fólk skoði forfallatryggingar sem tengjast kredikortum sínum eða skaffi sér sérstaka ferðatryggingu.
Það er því miður ekki lengur möguleiki að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun með Icelandair. Þeir sem vilja nota vildarpunkta geta valið að kaupa sitt flug sjálfir á heimasíðu Icelandair.
Þátttaka í hópbókun krefst að minnsta kosti 10 farþega. Ef lámarksþáttaka næst ekki, gilda reglur og skilyrði hópsins ekki lengur.
Farangursheimild, ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg er innifalin.Hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Breyting verður að gerast áður en flugmiði er gefinn út.
Ef þátttakandi bókar ferðina með röngu nafni, getur Icelandair krafist nafnabreytingar gegn ákveðnu gjaldi.
Þar sem um hópbókun er að ræða þurfa allar breytingar og aðrar fyrirspurnir varðandi flug að fara í gegnum Skotgöngu.
Hægt er að kaupa flugið út í hópbókun en ekki er hægt að kaupa flug fyrir heimferð eingöngu. Hægt er að tala við ferðaskrifstofuna (Skotgöngu) með breytingu á heimferð frá öðru landi í þeim tilfellum sem fólk er að ferðast annað eftir ferðina.
Lokagreiðsla á ferð er 10 vikum fyrir brottför. Þátttakendur munu fá tilkynningu þegar kemur að lokagreiðslu.