Ferðaáætlun
Gönguferð á Costa Blanca svæðinu
Flug FI584 með Icelandair kl. 16:25 og lent í Alicante kl. 22:55. Fararstjórar taka á móti hópnum á Alicante flugvelli. Þaðan er ekið á Albir Playa Hotel & Spa****.
Eftir morgunverð er gengið frá hótelinu að El Faro vitanum í Albir. Þaðan er gríðarlega fallegt útsýni hvert sem litið er og hægt er að sjá Calpe klettinn eða Penon d´lfach sem er nokkurskonar Gibraltar Alicante, og upp í Bernia fjöllin. Að göngu lokinni er frjáls tími og tilvalið að fá sér hádegisverð í bænum og skoða sig um.
Lagt er að stað með rútu og ekið í rúman klukkutíma að upphafstað göngu. Gangan byrjar í um 650 m hæð og er gengið á fjölbreyttum göngustígum, stórum steinum og lausagrjóti. Útsýnið frá leiðinni er stórkostlegt, til vinstri má sjá norður strönd Costa Blanca og upp til Valencia og til hægri yfir Altea, Albir og Benidorm.
Tilvalið að nýta sér aðstöðuna á hótelinu og skella sér í SPA eða nudd, liggja í sólbaði og kíkja á sunnudagsmarkaðinn sem er í stuttu göngufæri frá hótelinu. Eins er hægt að taka leigubíl til Benidorm sem er oft kölluð New York Evrópu eða í verslunarmiðstöðina Centro Comercial La Marina.
Boðið er upp á göngu til Altea seinnipartinn fyrir þau sem vilja.
Ekið frá hóteli í ca. klukkutíma til Alcalalí þar sem ganga hefst. Gengið er upp til Coll de Rathes og niður til Parcent um einn af fegurstu stöðum Costa Blanca, á milli hárra tignarlega fjalla um dalinn Jalon.
Lagt er af stað með rútu frá hóteli og keyrt er í ca. 40 mínútútur til Callosa, upphafstað göngu. Þar munum við ganga framhjá Guadalest uppistöðulóninu og að litlum bæ sem kallast Berniarda. Eftir gönguna ökum við að Guadalest sem er eitt sérstæðasta fjallaþorp Spánar. Í þorpinu er frjáls tími og tilvalið að skoða sig um og kíkja í söfn.
Rúta frá hóteli að La Fustera (ca. ½ tíma akstur). Þaðan er gengið meðfram strandlengjunni til Calpe. Eftir göngu er frjáls tími í bænum til að fara í hádegisverð og skoða sig um.
Um kvöldið förum við saman út að borða á veitingastað í nágrenninu.
Frjáls tími fram að brottför. Kl. 20:00 er ekið frá hóteli til Alicante flugvallar. Flug FI585 kl. 23:50 og lent kl. 02:35 (+1).
Hvað er innifalið
- Áætlunarflug með Icelandair KEF-ALC
- Áætunarflug með Icelandair ALC-KEF
- Ein taska hámark 23kg 10kg handfarangur
- Flugvallarskattar
- Gistingar með morgunverði í 7 nætur
- Allur akstur skv. dagskrá
- 7 kvöldverðir
- 1 hádegisverður á hóteli
- 2 hádegisnesti
- Íslensk fararstjórn
- Skattar og tryggingagjöld í UK
Ekki innifalið
- Ferðatryggingar
- 3 hádegisverðir
- Drykkir með mat
- Þjórfé fyrir rútubílstjóra
Inga Geirsdóttir
Margrét Snorradóttir
Algengar spurningar
Þó við getum aldrei treyst á veðrið þá er meðalhitinn á Albir um 20° í apríl.
Albir Playa Hotel & Spa er 4**** hótel á frábærum stað rétt við ströndina í Albir. Það tekur örfáar mínútur að rölta á ströndina sem er steinvöluströnd. Þjónustan á hótelinu er afar fjölbreytt og því flestir sem geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Það er útisundlaug í hótelgarðinum en einnig er innisundlaug og heilsulind. Á hverju herbergi er sjónvarp, hárþurrka, ísskápur/minibar, svalir og þráðlaust net án endurgjalds.
Þau sem ferðast saman geta fengið þríbýli en athugið að þriggjamanna herbergi á hótelinu þá eru tvö rúm og svefnsófi. Þó svefsnsófinn er ágætur að sofa á, þá verður mjög lítið pláss í herberginu þegar rúmið er tekið út.
Skotganga (Scot Walks Ltd) er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi, UK.
Ef einhver kemst ekki í þá ferð sem viðkomandi hefur bókað í, er ekki hægt að fá endurgreiðslu á innáborgun né færa innáborgun yfir á aðra ferð. Við mælum með því að fólk skoði forfallatryggingar sem tengjast kredikortum sínum eða skaffi sér sérstaka ferðatryggingu.
Það er því miður ekki lengur möguleiki að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun með Icelandair. Þeir sem vilja nota vildarpunkta geta valið að kaupa sitt flug sjálfir á heimasíðu Icelandair.
Þátttaka í hópbókun krefst að minnsta kosti 10 farþega. Ef lámarksþáttaka næst ekki, gilda reglur og skilyrði hópsins ekki lengur.
Farangursheimild, ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg er innifalin.
Hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Breyting verður að gerast áður en flugmiði er gefinn út.
Ef þátttakandi bókar ferðina með röngu nafni, getur Icelandair krafist nafnabreytingar gegn ákveðnu gjaldi.
Allar breytingar og aðrar fyrirspurnir varðandi flug þurfa að fara í gegnum Skotgöngu, þar sem um hópbókun er að ræða.
Hægt er að kaupa flugið út í hópbókun en ekki er hægt að kaupa flug fyrir heimferð eingöngu. Hægt er að tala við ferðaskrifstofuna (Skotgöngu) með breytingu á heimferð frá öðru landi í þeim tilfellum sem fólk er að ferðast annað eftir ferðina.
Lokagreiðsla á ferð er 10 vikum fyrir brottför. Þátttakendur munu fá tilkynningu þegar kemur að lokagreiðslu.